Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Helgi Seljan um fölsunarásakanir Samherja: „Þessi skýrsla fannst svo degi seinna hjá Verðlagsstofu“

„Ég veit til dæmis fyrir víst, vegna þess að mér hefur verið sagt það, að þegar Samherji dúkkaði upp með þessa ásökun sem meikar nátt­úrlega engan sens um að við hefðum falsað eitthvert skjal og einhverja skýrslu og drógu fram held ég stóran hluta af skipuritinu sínu til að leika í einhverju myndbandi fyrir sig til að ræða það, þá vísuðu þeir í að þessi stofnun, sem hafði áður viðurkennt opinber­lega að það hefði verið rannsókn í gangi á þessum útflutningi Samherja á þessum tíma, kannaðist ekki við að þessi skýrsla væri til.

Ég veit það núna, af því að ég hef fengið það staðfest, að þessi skýrsla fannst svo degi seinna eða eitthvað hjá Verðlags­stofu, en einhverra hluta vegna ákvað stofnunin að bíða með það í marga daga að birta þessa skýrslu og birta hana þá ekki sjálf heldur fékk hún Samherja til að birta hana á meðan ég sat undir því að vera kallaður falsari; það skipti svo sem engu máli af því að það stóð ekki steinn undir steini í þessu. En þú getur rétt ímyndað þér að það skipti máli að það sé gert rétt upp fyrir eftirlits­stofnun sem á að hafa eftirlit með stórum sjávar­útvegs­fyrirtækjum.

Ég held að fólk átti sig almennt ekki á því hvernig kaupin gerast á eyrinni og þá er ég ekki bara að tala um Eyrina fyrir norðan heldur á öllum þessum eyrum hringinn í kringum landið, þar sem menn eru að veiða fisk og koma með að landi. Undan­tekningar­laust eru sjómenn í þeirri stöðu að þeir eru í raun og veru að treysta á uppgjör í viðskiptum sem eiga sér stað á milli sama mannsins, sem er útgerðar­maðurinn þeirra. Þetta er stofnunin sem á að vera varð­hundurinn fyrir sjómenn; að passa upp á að þessi viðskipti séu gerð á eðlilegum grunni. Og það að hún hafi gert þetta segir eiginlega allt sem segja þarf um það hvernig „mentalitetið“ virðist vera inni á þessari stofnun.“

Viðtal Reynis Trausta­sonar við Helga Seljan.

Opinskátt helgar­viðtal Mannlífs við Helga Seljan má nálgast hér. Einnig er hægt að næla sér í ókeypis eintak í verslunum Bónuss og Hagkaupa. 

Hægt er að horfa á viðtalið í VefTV hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Í grein fyrir breska lesendur lýsir Kristjana Guðbrandsdóttir því hvernig hún nýtur vetrarins í Reykjavík án þess að treysta alfarið á húshitun.
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki