Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

„Sláandi að lesa fréttir af aukinni tíðni hatursorðræðu og glæpa hér á landi í garð hinsegin fólks“

Stella Samúelsdóttir.
Stella Sam­ú­els­dóttir.

Al­var­leg teikn á lofti – á­skorun til ís­lenskra stjórn­valda er yfir­skrift greinar sem Stella Samúels­dóttir framkvæmda­stýra UN Women á Íslandi ritar.

Byrjar svona:

„Stöðugar fréttir af auknu hatri og óþoli í garð hinsegin fólks á Íslandi eru alvarleg teikn á lofti sem bregðast verður við. Í morgun var meðal annars fjallað um áhyggjur Mann­réttinda- og ofbeldis­varnarráðs Reykja­víkurborgar af stöðu hinsegin barna og ungmenna sem hafa í auknum mæli verið að segja frá alvarlegum hótunum og aðkasti innan veggja skóla.“

Stella segir að „mann­réttindi eiga undir högg að sækja um allan heim og því gríðar­lega mikilvægt að spyrna fótum við þeirri þróun. Eitt mikil­vægasta vopnið gegn fordómum og fáfræði er aukin fræðsla, upplýst umræða og samheldni samélagsins um að standa vörð um ákveðin gildi á borð við jafnrétti, frelsi og mann­réttindi.“

Einnig að „mann­réttindi jaðar­settra hópa hafa sjaldnast dottið af himnum ofan, kynslóðir eftir kynslóðir börðust fyrir aukinni viðurkenningu og mann­virðingu. Fyrir skilningi á því að við erum ólík. Mörg lönd hafa náð góðum árangri í þessu samhengi á meðan önnur eiga enn langt í land. Ísland er eitt þeirra landa sem hefur sett mann­réttindi sem leiðar­stef í innan­ríkis- og utan­ríkisstefnu sinni og náð góðum árangri. Allt frá Vigdísi Finnboga­dóttur yfir til Jóhönnu Sigurðar­dóttur,“ sem Stella telur að séu „konur sem ruddu svo sannarlega brautina á heimsvísu í nafni íslenskrar þjóðar.

Tákn­myndir um möguleika, sem ég veit að margar þjóðir líta hýru auga að verði að veruleika einn daginn hjá þeim líka.“

Og bætir við:

„Þess vegna er svo sláandi að lesa fréttir af aukinni tíðni haturs­orðræðu og glæpa hér á landi í garð hinsegin fólks. UN Women á Íslandi ákvað að varpa ljósi á stöðu hinsegin fólks á heimsvísu með Fokk ofbeldi herferðinni sem hófst á dögunum með sölu FO vettlinga. Allur ágóði af sölunni mun renna í hinsegin sjóð UN Women sem nú stendur tómur. Við tókum þá ákvörðun að samhliða því að safna fjármunum fyrir fjár­sveltan sjóð ytra, væri einnig mikilvægt að hreyfa við hlutunum hér heima. Enda hefur umræðan um bakslag verið hávær síðustu mánuði.

Við hófum því undir­skriftar­átak í því skyni að hvetja almenning til að taka skýra afstöðu með réttindum hinsegin fólks og skora á íslensk stjórn­völd að bregðast við því bakslagi í hinsegin barátt­unni sem virðist hafa skotið rótum í samfélaginu okkar. Íslensk stjórn­völd bera ábyrgð á því að tryggja að löggjöf sé verndandi fyrir jaðar­setta hópa ásamt því að stuðla að forvirkum aðgerðum í formi fræðslu og upprætingu fordóma. Að sama skapi hvetjum við stjórn­völd til að beita sér á alþjóða­vettvangi fyrir því að aðrar þjóðir taki sér Ísland til fyrir­myndar og tryggi lagaleg réttindi hinsegin fólks. Það hefur aldrei verið jafn mikilvægt og núna að Ísland láti mann­réttinda­rödd sína heyrast.“

Stella færir í tal að „UN Women á Íslandi hvetur almenning til að skrifa undir þennan undir­skriftar­lista, taka þannig afstöðu með mann­réttindum og þrýsta á íslensk stjórn­völd að tryggja virka hinsegin­fræðslu á öllum skóla­stigum um allt land um fjöl­breyti­leikann og mann­réttindi líkt og námsskrá segir til um og ungt fólk kallar eftir. UN Women á Íslandi mun afhenda Katrínu Jakobs­dóttur, forsætis­ráðherra, Ásmundi Einari Daðasyni mennta- og barnamála­ráðherra, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfa­dóttur utan­ríkis­ráðherra og Guðmundi Inga Guðbrands­syni félags- og vinnu­markaðs­ráðherra undir­skriftar­listann að söfnun lokinni. Ég hvet þig til að taka afstöðu og skrifa undir hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“