Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Stjórnmálamenn samþykkja siðareglur: „Þiggja ekki gjafir nema að um sé að ræða óverulegar gjafir“

Bæjarstjórn Ísafjarðar
Bæj­ar­stjórn Ísa­fjarðar

Í síðustu viku samþykkti – á fundi sínum – bæjar­stjórn Ísafjarðar­bæjar siða­reglur fyrir kjörna fulltrúa.

Í reglunum er fjallað um valdmörk, trúnað, hagsmuna­árekstra, starfs­skyldur, gjafir, fríðindi og stöðu­veitingar.

Með nýju siðreglunum er skráð sem og skilgreind sú háttsemi sem kjörnir fulltrúar vilja sýna af sér við sín störf; þeir lýsa því yfir með undir­skrift að þeir ætli að hafa siða­reglurnar að leiðar­ljósi.

Með þessu gæta kjörnir fulltrúar þess að við stöðu­veitingar hjá Ísafjarðarbæ séu eingöngu málefnalegar forsendur að baki vali og ráðningu á starfs­mönnum sveitar­félagsins.

Kemur fram að að kjörnir fulltrúar skuli ekki þiggja gjafir, fríðindi né önnur hlunnindi frá viðskipta­mönnum og/eða þeim sem leita eftir þjónustu Ísafjarðar­bæjar; nema að um sé að ræða óverulegar gjafir; kjörnir fulltrúar þiggja ekki gjafir né fríðindi eða önnur hlunnindi, ef líta má á það sem endur­greiðslu fyrir greiða og/eða sérstaka þjónustu.

Fulltrúunum ber að forðast hagsmuna­árekstra í störfum sínum; og vekja athygli á því ef hætta er á þannig árekstrum.

Arna Lára Jóns­dóttir bæj­ar­stjóri Isa­fjarð­ar­bæjar

Hér að neðan má lesa siða­reglurnar nýsamþykktu:

SIÐAREGLUR kjörinna fulltrúa í Ísafjarðarbæ

1. gr. Markmið siða­reglnanna Í reglum þessum er skráð og skilgreind sú háttsemi sem kjörnir fulltrúar vilja sýna af sér við öll sín störf. Með kjörnum fulltrúum er í reglum þessum átt við bæjar­fulltrúa og alla aðra sem kjörnir eru til setu í nefndum og ráðum Ísafjarðar­bæjar, reglurnar ná einnig til áheyrnar­fulltrúa eftir því sem við getur átt.

2. gr. Starfs­skyldur kjörinna fulltrúa Kjörnir fulltrúar gegna störfum sínum af samviskusemi og heiðar­leika. Í störfum sínum er kjörinn fulltrúi bundinn af lögum, reglum og samþykktum Ísafjarðar­bæjar, sem og sannfæringu sinni. Kjörnir fulltrúar hafa ávallt í heiðri grundvallar­reglur góðrar stjórn­sýslu í störfum sínum, þ.m.t. gagnsæi í ákvarðana­töku og hafa hagsmuni Ísafjarðar­bæjar að leiðar­ljósi í öllum störfum sínum. Kjörnir fulltrúar hafa eftirlit með rekstri Ísafjarðar­bæjar og gæta þess að framkvæmd stjórn­sýslu og rekstrar sveitar­félagsins sé ávallt í samræmi við þau lög og reglu­gerðir sem við eiga hverju sinni. Kjörnum fulltrúum ber að virða trúnaðar­skyldu sína gagnvart málum sem samkvæmt lögum krefjast þagmælsku. Í öðrum málum skulu þeir starfa fyrir opnum tjöldum og vera reiðu­búnir að svara fyrir verk sín.

3. gr. Valdmörk Kjörnir fulltrúar gæta þess að fara ekki út fyrir umboð sitt í störfum sínum og virða verka­skiptingu í stjórn­kerfi Ísafjarðar­bæjar. Þeir sýna störfum og réttindum annarra kjörinna fulltrúa og starfs­manna Ísafjarðar­bæjar virðingu í ræðu, riti og framkomu. Bæjar­fulltrúar mega ekki hlutast til um að starfs­menn geri neitt það sem hefur þann tilgang að verða kjörnum fulltrúum á beinan eða óbeinan hátt til persónu­legs ávinnings, né heldur aðila nátengdum þeim eða ákveðnum hópum eða fyrir­tækjum, sem þeir tengjast.

4. gr. Trúnaður Í störfum sínum í nefndum og ráðum fá kjörnir fulltrúar oft vitneskju sem leynt á að fara vegna einka­hagsmuna eða almennings­hagsmuna samkvæmt lögum eða eðli máls. Um slíka vitneskju ber kjörnum fulltrúum að gæta þagmælsku og trúnaðar. Trúnaðurinn helst áfram eftir að kjörnir fulltrúar láta af störfum. Kjörnir fulltrúar virða trúnað um ummæli einstakra fundar­manna á lokuðum fundum í nefndum og ráðum Ísafjarðar­bæjar og á öðrum lokuðum fundum sem varða störf þeirra í bæjar­stjórn, sem og um innihald skjala eða annarra gagna, sem þeir fá aðgang að vegna starfa sinna og trúnaður skal vera um.

5. gr. Hagsmuna­árekstrar Kjörnir fulltrúar forðast hagsmuna­árekstra í störfum sínum og vekja athygli á því ef hætta er á slíkum árekstrum. Á þetta einnig við ef þær breytingar verða á högum kjörins fulltrúa, að valdið gætu slíkum hagsmuna­árekstrum. Um hæfi þeirra við meðferð einstakra mála fer eftir 20. gr. sveitar­stjórnar­laga nr. 138/2011. Kjörnir fulltrúar nýta sér ekki stöðu sína í þágu einka­hagsmuna sinna eða annarra sem eru þeim tengdir, hvort sem ávinningur af slíku kemur fram strax eða síðar, þ.m.t. eftir að störfum fyrir Ísafjarðarbæ lýkur.

6. gr. Gjafir og fríðindi Kjörnir fulltrúar þiggja ekki gjafir, fríðindi eða önnur hlunnindi frá viðskipta­mönnum eða þeim, er leita eftir þjónustu Ísafjarðar­bæjar, nema að um sé að ræða óverulegar gjafir. Kjörnir fulltrúar þiggja ekki gjafir, fríðindi eða önnur hlunnindi ef líta má á það sem endur­greiðslu fyrir greiða eða sérstaka þjónustu.

7. gr. Stöðu­veitingar Kjörnir fulltrúar gæta þess að við stöðu­veitingar hjá Ísafjarðarbæ liggi einungis málefnalegar forsendur að baki vali á starfs­mönnum.

8. gr. Miðlun siða­reglna til kjörinna fulltrúa, embættis­manna og almennings Kjörnir fulltrúar undir­gangast þessar siða­reglur með undir­skrift sinni og lýsa því þar með yfir að þeir ætli að hafa þær að leiðar­ljósi. Siða­reglurnar skulu vera aðgengilegar starfs­fólki sveitar­félagsins, almenningi og fjöl­miðlum á heimasíðu Ísafjarðar­bæjar og annan þann hátt sem sveitar­stjórn ákveður til að þessir aðilar geti gert sér grein fyrir megin­reglum þeirra.

Þannig samþykkt á 497. fundi bæjar­stjórnar Ísafjarðar­bæjar 1. september 2022

Arna Lára Jóns­dóttir, bæjar­stjóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum