Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Páll segir Samherja brotaþola í Namibíu: „Mun RÚV biðja Samherja afsökunar?“

Páll Vilhjálmsson. Samsett mynd.
Páll Vil­hjálms­son. Samsett mynd.

Páll Vilhjálmsson spyr hvort Rúv muni biðja Samherja afsökunar og jafnvel hvort Rúv verði lagt niður.

Einn umtalaðasti framhalds­skóla­kennari landsins, Páll Vilhjálmsson, skrifaði nýja blogg­færslu á jóladag þar sem hann fjallar enn og aftur um Samherja­málið.

Í færslunni segir hann mála­ferlin sem nú standa yfir í Namibíu vegna spillingar í sjávar­útveginum þar í landi og Samherji hefur tengst, sýni að Samherji sé brotaþoli í málinu. Þá spyr hann hvort Rúv muni biðja útgerða­félagið afsökunar og jafnvel leggja upp laupana. Færsluna má lesa í heild sinni hér að neðan:

„Níu Namibíu­menn eru ákærðir í dóms­málinu sem rekið er í Namibíu, og snýst um úthlutanir veiði­heimilda. Kjarni dóms­málsins breytingar eru sem gerðar voru á fiskveiði­löggjöf landsins árið 2015 og hvernig þeim var framfylgt.

Einn ákærðra, Bernhardt Esau, var sjávar­útvegs­ráðherra Namibíu 2010 til 2019. Namibian Sun hefur eftir Esau að tilgangur laga­breytinganna 2015 hafi verið  ,,að opna iðnaðinn og afnema einokun Namsov og Erongo Marine Enterprises.“

,,Mér var hótað fangelsi eftir að ég lækkaði kvóta Namsov og Erongo Marine Enterprises,“ segir Esau í frétt Namibian Sun.

Laga­breytingarnar 2015 fólu í sér að opinberri stofnun, Fishcor, var heimilt að selja kvóta í þágu samfélagslegra verkefna. Kvóti Fishcor var tekinn af heildar­kvóta. Aðrir, t.d. Namsov og Erogo, fengu minna úthlutað

Tilfall­andi athugasemd sagði frá einu aðkomu Samherja að dóms­málinu þar syðra. Samherji einfald­lega keypti kvóta af Fishcor og greiddi fyrir samkvæmt gildandi lögum og reglum. Samherji er brotaþoli, útgerðin var blekkt af namibískum embættis­manni, undir­manni Esau.

Fyrir utan dómsmálið í Namibíu eru íslensk yfirvöld með til rann­sóknar gögn sem uppljóstrarinn Jóhannes Stef­ánsson og RÚV afhentu í framhaldi af Kveiks-þætti haustið 2019.

Bréf sem héraðs­saksóknari sendi til Namibíu síðast liðinn október og Tilfall­andi athugasemd fjallaði um gefur til kynna að rann­sóknin hér á landi sé enn á byrjunar­reit. Auk héraðs­saksóknara er skatt­rannsókna­stjóri með gögn Jóhannesar og RÚV til skoðunar.

Þegar það rennur upp fyrir íslenskum sakamála­yfirvöldum að þar syðra í Namibíu er rekið dómsmál sem lýtur eingöngu að spillingu í embættis­manna­kerfinu eru meiri líkur en minni að Namibíu­málið, sem RÚV og RSK-miðlar kalla alltaf Samherja­málið, verði fellt niður á Íslandi.

Mun RÚV biðja Samherja afsökunar?

Önnur spurning, öllu mikil­vægari:

Verður RÚV lagt niður þar sem stofnunin er stór­hættuleg réttar­ríkinu?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Halla Tómasdóttir segir að margir karlar glími við einmanaleika og óvissu um hlutverk sitt í samfélaginu.

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja