Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Karl fékk boð til Wall Street: „Ég hélt fyrst að þetta væri maður sem ætti við vandamál að stríða“

Stundum er raun­veruleikinn eins og bíómynd. Talið berst að maka­lausri sögu sem Karl Ágúst sagði einhvern tímann í útvarpi. Hvað var þetta í ósköpunum? Og hann segir sögu frá 2017.

„Ég var í gönguferð í Riverside Park á Manhattan og átti ákveðið erindi sunnar á eyjunni. Allt í einu vatt sér að mér eldri maður og fór að spjalla. Ég hélt fyrst að þetta væri kannski maður sem ætti við vandamál að stríða, sem ég var ekki alveg tilbúinn að takast á við, en svaraði honum auðvitað og hélt áfram að ganga og hann gekk við hliðina á mér.

Svo kom í ljós að þetta var maður sem hafði átt mjög fjöl­breyttan starfs­feril, en hann var sænskur og hafði búið í Banda­ríkjunum í áratugi. Hann hafði kynnst þjóð­höfðingjum; sænskum stjórn­völdum, bandarískum forsetum og þýskum könslurum og fólki úti um allt. Og auðkýfingum. Og hann hafði sögur að segja af þessu fólki.

Ég fékk allt í einu mikinn áhuga á þessu, af því að mér fannst þetta vera flottar sögur, skemmtilegar og sumar svolítið lygilegar. Ég hugsaði með mér að hann væri örugglega að skreyta þetta verulega.

Við áttum gott spjall og gengum þennan garð eiginlega alveg á enda í rólegheitum. Hann bauð mér síðan að koma daginn eftir á Wall Street. Hann langaði til að sýna mér ákveðna hluti þar. Það sem kannski kveikti áhuga hans á mér, var að hann spurði við hvað ég starfaði. Í fyrsta lagi fannst honum merkilegt að ég væri Íslend­ingur og í öðru lagi að ég væri rithöfundur. Þá held ég að hann hafi séð einhvern möguleika á að við gætum átt eitthvert samstarf, til dæmis við að skrifa bók eða einhvers konar efni sem væri byggt á ævi hans. Ég tók ekkert vel í það að fara með honum á Wall Street, af því að ég átti flug daginn eftir, það var seinni partinn en ég sleppti að segja honum það. Ég sagði að ég gæti líklega ekki hitt hann af því að ég ætti að fljúga heim til Íslands…“
Lesa má söguna í heild sinni í nýju blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“