Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Ríkissaksóknari Namibíu leitar aðstoðar Interpol við að hafa upp á þremur Íslendingum

Saksóknari lagði fram ósk um aðstoð Interpol í Hæstarétti í Windhoek, höfuðborg Namibíu í vikunni. Málið snýr að þeim Ingvari Júlíussyni, Agli Helga Árnasyni og Aðalsteini Helgasyni en saksóknari vill að þeir beri vitni um atriði rann­sóknarinnar, samkvæmt frétt Allgemeine Zeitung í Namibíu.

Mennirnir stýrðu allir eða komu að stjórnun fyrir­tækja Samherja í Namibíu. Aðalsteinn og Egill Helgi voru framkvæmda­stjórar Samherja í Namibíu. Egill Helgi er ákærður vegna starfa sinna fyrir Esju Holding og Mermaria Seafood Namibia. Ingvar var fjármála­stjóri og er ákærður vegna starfa fyrir Saga Seafood, Esja Investment og Heinaste Investments.

Ríkis­saksóknari Namibíu hefur farið þess að leit við Interpol að alþjóða­lögreglan aðstoði við að hafa upp á þessum þremur Íslendingum vegna rann­sóknarinnar á Samherja­skjölunum. Þremenningarnir hafa farið fram á að fá að bera vitni að utan og að þurfa ekki að fara til Namibíu í þeim erinda­gjörðum en saksóknari segist bjartsýnn á að mennirnir verði færðir til Namibíu.

Saksóknari í Namibíu gaf út ákæru á hendur mönnunum í fyrra, sem og framsals­beiðni til íslenskra stjórn­valda en henni var hafnað enda framselja stjórn­völd ekki íslenska ríkis­borgara.

Saksóknari segir yfirvöld í Namibíu hafa meira en næg sönnunar­gögn í höndunum til að réttlæta aðkomu Interpol og segir Íslendingana þrjá ekki hafa lagt neitt fram sem sýni annað. Hún segir þá nú reyna allt hvað þeir geti til að afmá spor sín og sannanir. Samherji sé ekki lengur með neina íslenska starfs­menn í landinu.

Hún bætir því við að Ingvar Júlíusson, fulltrúi mannanna, hafi neitað að upplýsa hvar, hvenær og hvernig hann hafi fengið umboð mannanna til þess að óska eftir því að bera vitni utanlands frá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Í grein fyrir breska lesendur lýsir Kristjana Guðbrandsdóttir því hvernig hún nýtur vetrarins í Reykjavík án þess að treysta alfarið á húshitun.
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki