Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Björk skömmuð fyrir viðtal

©Kristinn Ingvarsson Anna Dóra Sæþórsdóttir
©Kristinn Ingv­ars­son Anna Dóra Sæþórs­dóttir Mynd: KRISTINN INGVARSSON / Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Björk Eiðs­dóttir, blaða­maður Frétta­blaðsins, tók á dögunum umdeilt forsíðu­viðtal við Önnu Dóru Sæþórs­dóttur, fyrr­verandi forseta Ferða­félags Íslands, sem sagði af sér með miklum látum nokkru eftir að hafa verið formlega ásökuð um einelti gegn Páli Guðmunds­syni framkvæmda­stjóra.

Anna Dóra hafði gert samkomulag um að víkja úr embætti án stórra yfir­lýsinga, gegn því að fallið yrði frá eineltis­kærunni. Eineltis­kæran var blásin af og Anna Dóra ætlaði að stíga til hlaðar og fullkomna sáttina. En það gerðist ekki.

Anna Dóra var í viðtali við Stundina fyrir ári síðan þar sem hún lýsti því að öll mál sem kvartað hafði verið yfir voru leyst og hún yrði að gæta trúnaðar varðandi einstök mál.

„Við getum ekki tjáð okkur um málefni einstakra starfs­manna/stjórnar­manna en viljum þó segja að öll þau mál sem upp hafa komið hjá Ferða­félaginu sem varða þennan málaflokk hafa verið meðhöndluð í samræmi við viðbragðs­áætlun félagsins,“ sagði Anna Dóra í nóvember í fyrra.

Ári seinna birti hún nöfn farar­stjóra og stjórnar­manna sem hún gaf til kynna að hefðu brotið alvarlega af sér í skjóli stjórnar og framkvæmda­stjórnar og var ósátt við meðhöndlun þeirra mála. Viðtal Frétta­blaðsins við hana þótti vera með miklum endemum, hlaðið rang­færslum og beinum rógi auk trúnaðar­brota gegn félaginu. Nokkrir félags­manna Ferða­félagsins hafa fordæmt skrif Bjarkar sem er sökuð um að bera á torg mál sem höfðu öll verið útkljáð með sátt. Anna Dóra var ekki spurð um eineltis­málið á hendur henni. Þá var hún ekki spurð um þá tilraun sem hún, Róbert Marshall farar­stjóri og félagar hennar gerðu til hallar­byltingar í félaginu.

Á fjölmennum fundi Ferða­félagsins á fimmtudags­kvöld kom fram í máli fundar­manns að eftir að hafa lesið viðtalið í Frétta­blaðinu hefðu augu hans beinlínis opnast fyrir þeirri herferð sem Anna Dóra stæði í gegn sínu gamla félags. Yfir­gnæfandi fjöldi fundar­manna samþykkti á einum allra fjölmennasta fundi í sögu Ferða­félagsins að lýsa fullu trausti á sitjandi stjórn og framkvæmda­stjóra. Óljóst er hvernig Sigmundur Ernir Rúnarsson ritstjóri mun taka á málinu og hvort rang­færslurnar verða hraktar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn
Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Slúður