Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Hermannaveikin á Íslandi – Smit rakin á spítalana

Mynd/skjáskot RÚV – Tengist frétt ekki beint
Mynd/skjá­skot RÚV – Tengist frétt ekki beint Mynd: Grímur Jón Sigurðsson

Það var í maí árið 1985 þegar ein helsta orsök lungna­bólgu­tilfella á Íslandi kom loks í ljós en var það hermanna­veikin. Veikin varð nokkuð útbreidd hér á landi og leyndist hún bæði á Borgar­spítala og Lands­spítala. Þrjátíu manns af þeim 200 sem höfðu fengið lungna­bólgu, reyndust hafa fengið bakteríuna sem olli hermanna­veiki en þar af létust sex manns. Fjallaði DV um málið á sínum tíma og benti margt til þess að tíðni veikinnar hafi verið meiri hér á landi en í nágranna­löndum. Bakterían var sögð kunna best við sig í heitu vatni en voru tíu smit rakin til spítala.

„Heilbrigöisyfirvöldum hér á landi var ekki kunnugt um að rann­sóknir á tilvist hermanna­veiki hefðu farið fram allt frá hausti 1983. Frá hausti 1983 til hausts 1984 voru öll lungna­bólgu­tilfelli, um 200 að tölu, könnuð á Land­spítalanum og Borgar­spítalanum. Bæði var um að ræða sjúklinga sem höfðu verið lagðir inn og þá sem höfðu fengið veikina á spítulunum. Í þrjátíu tilfellum fannst bakterían sem veldur hermanna­veiki. Af þessum 30 létust líklega 5—6 sjúklingar af völdum veikinnar. Bakterían, sem veldur veikinni, þrífst vel í heitu vatni, um 30—50 stiga heitu,‘‘ segir í frétt DV frá árinu 1985 en skömmu áður var haft eftir Skúla Johnsen, borgar­lækni, að hann hefði ekki heyrt minnst á veikina hér á landi. Auk þess taldi hann enga hættu vera á hermanna­veikinni hér á landi en aðeins degi eftir þá stað­hæfingu Skúla kom allt annað í ljós.

„Það er ákaflega vont að lesa um svona lagað fyrst í blöðunum. Þetta eru upplýsingar sem eiga að berast jafnóðum til heilbrigðis­yfirvalda. Við höfðum ekki hugmynd um þetta og það hafði aldrei verið á þetta minnst við okkur,” sagði Skúli í viðtali við DV og taldi málið alvarlegt. Einn þeirra sem stóð að rann­sóknunum var Sigurður B. Þorsteinsson, læknir. Sagði hann að skella mætti skuldinni á þá að upplýsingarnar hefðu ekki ratað til yfirvalda og þótti málið hið mesta hneyksli. Hins vegar hafi það verið mat þeirra að ekki hafi verið rétt að opinbera niður­stöðuna fyrr en þeir væru fyllilega sann­færðir um tilvist veikinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum