Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Tífalt fleiri gæslu­varð­halds­fang­ar í ein­angr­un hér en í Dan­mörku: „Lögreglan fær frítt spil“

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu.
Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður Afstöðu.

Niður­staða nýrrar skýrslu Amnesty International er Heimildin fjallaði um er sú að mann­réttindi og alþjóðalög séu fótum troðin og þver­brotin af íslenskum stjórn­völdum; þykja þau ofnota einangrunar­vist þegar grunaðir menn sitja í varðhaldi.

Rannsókn Amnesty er sláandi en það er þó ekki nýtt að stjórn­völd á Íslandi sæti gagnrýni vegna þess.

Kemur fram að alþjóða­stofnanir hafa ítrekað gert svipaðar athuga­semdir í úttektum sínum á Íslandi; beint því til stjórn­valda að minnka eða hætta jafnvel alveg að vista grunaða menn í einangrun.

Fyrir átta árum vakti athygli samanburðar­rannsókn Elísabetar Ingólfs­dóttur, meistara­nema í lögfræði, þar er hún bar saman stöðu mála á Íslandi og á Norður­löndunum.

Elísabet Ing­ólfs­dóttir lög­fræð­ingur.

Kom berlega í ljós að á Íslandi var einangrun gæslu­varðhalds­fanga miklu algengari en í Skandinavíu; var hlutfall gæslu­varðhalds­fanga sem sættu einangrun hér á landi 76% á árunum 2009 til 2014, saman­borið við 1% í Danmörku og 13% í Noregi á sama tímabili.

Svo segir að saman­burðurinn við Svíþjóð hafi ekki verið fyllilega marktækur þar sem aðeins lágu til grund­vallar tölur yfir hlutfall þeirra er sætt höfðu einhverju formi þvingunar­úrræða samhliða gæslu­varðahaldi; má þar nefna mynda-, síma-, eða heimsóknar­banni; Jafnvel þá kom Ísland verr út úr saman­burðinum.

Einangrunar­vist er ekkert grín; hún felur í sér algjöra innilokun á klefa í 22 tíma á sólar­hring, án alls möguleika á sambandi við umheiminn.

Athygli vekur að þrátt fyrir mikinn mun á fólks­fjölda sátu fleiri einstaklingar í einangrun á Íslandi en í Danmörku á árinu 2013 – 55 í Danmörku og 83 hér á landi.

Danir hafa unnið markvisst í því að fækka enn frekar í hópi þeirra sem sæta einangrun en sömu sögu er ekki að segja af Íslandi

Þegar sú staðreynd er höfð í huga að íbúar Danmerkur eru um 6 milljónir en hér á landi búa um 370 þúsund manns, verður saman­burðurinn margfalt óhag­stæðari fyrir Ísland.

Guðmundur Ingi Þóroddsson er formaður Afstöðu, félags fanga hér á landi, og segist hann í samtali við Heimildina fagna því að Amnesty láti þetta mál til sín taka, það sé löngu kominn tími til að aukinn þrýstingur sé settur á íslensk stjórn­völd til breytinga í þessum mála­flokki:

„Þetta er auðvitað löngu vitað og marg tuggið. Eins sorglegt og það er sýnir þetta best hversu lítill áhugi er á því að hafa hlutina í lagi hér, þegar kemur að þessum málefnum. Á meðan fær lögreglan algjör­lega frítt spil til að gera það sem hún vill og dómstólar spila einfald­lega með. Það er löngu tímabært að tekið verði á þessum fangelsis­málum öllum og þau endur­hugsuð frá grunni.“

Guðmundur Ingi hefur reynslu af því að vera hand­tekinn og grunaður um alvarleg lögbrot, bæði á Íslandi og í Danmörku:

„Ég var hand­tekinn 28. desember 1999 hér á Íslandi og settur í gæslu­varðhald. Næstu sex vikurnar var ég í algjörri einangrun inni á klefa og án sambands við umheiminn. Þetta skemmir fólk. Ég hef margoft séð menn koma út úr svona langri einangrun mölbrotna –  breytta menn fyrir lífstíð. Og það er mikilvægt að fólk muni það að þarna erum við að tala um saklausa menn, að lögum. Þeir sem lögregla og dómarar senda í einangrun vegna rannsóknar­hagsmuna hafa ekki verið sakfelldir fyrir brot ennþá, þeir eru til rann­sóknar,“ segir Guðmundur Ingi.

Fyrir tíu árum síðan var Guðmundur hand­tekinn í Danmörku – grunaður um stórfellt fíkniefna­smygl – sem danskir lögreglu­menn og fjöl­miðlar sögðu með umfangs­meiri málum Danmerkur og hreinlega í allri Evrópu á þeim tíma:

„Þrátt fyrir það þótti ekki ástæða til að láta mig vera í einangrun lengur en í tvo daga, þann tíma sem ég sat í gæslu­varðhaldi vegna þess máls,“ segir Guðmundur sem var á endanum dæmdur til 12 ára fangelsis­vistar, og hefur hann tekið út sinn dóm; snúið við blaðinu.

Hann segir áhuga­leysi stjórn­valda á Íslandi í mála­flokknum vera mikið:

Rík­is­stjórn Íslands.

„Þetta er annars bara lýsandi fyrir áhuga- og sinnu­leysi yfirvalda fyrir því að taka allt þetta kerfi til endur­skoðunar. Það er löngu tímabært að tekið verði á þessum fangelsis­málum öllum og þau endur­hugsuð frá grunni. Árið 2003 skrifuðum við skýrslu um fangelsismál og það sem augljós­lega mátti laga. Ég fletti henni svo um daginn og sá þá hún gæti farið óbreytt í birtingu í dag, tuttugu árum síðar,“ segir Guðmundur Ingi í samtali við Heimildina. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim