Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Hönnuðu skartgrip til minningar um Sunnefu sem dæmd var til dauða fyrir blóðskömm

Skartgripurinn fallegi
Skart­grip­ur­inn fal­legi Mynd: Hús handanna

Þær Anna Guðlaug Sigurðar­dóttir, skartgrip­hönnuður og Kristín Amelía Atla­dóttir rithöfundur, í samvinnu við verslunina Hús handanna á Egils­stöðum, hafa hannað og framleitt skart­gripi til minning um örlög Sunnefu Jóns­dóttur og bróður hennar frá Borgar­firði eystri.

Sagan af Sunnefu er frá 18. öld en þar segir að hún hafi eignast son er hún var 16 ára gömul og að bróðir hennar, þá 14 ára, hafi verið faðir barnsins. Á meðan hún var í haldi sýslu­manns vegna málsins eignaðist hún annað barn sem einnig var kennt við bróður hennar. Voru þau bæði dæmd til dauða fyrir blóðskömm en snérist málið er Sunnefa sagði á Alþingi að Hans Wiium, sýslu­maður á Skriðu­klaustri í Fljótsdal, væri faðir seinna barnsins en hún var í haldi sýslu­mannsins um tíma.

„Við gerum þetta til að halda minningu hennar og bróður hennar á lofti enda ein grimmilegasta og viðbjóðlegasta glæpa- og örlaga­saga sem vitað er að gerst hafi hér fyrir austan,“ segir Lára Vilbergs­dóttir hjá Húsi handanna á Egils­stöðum í samtali við Austur­frétt.

Í Austur­frétt segir að skart­gripirnir séu afar táknrænir enda þar fjöru­steinar hlekkjaðir í náttúrulegt skart en steinarnir koma einmitt frá heima­högum Sunnefu í Geitavík á Borgar­firði eysti. Eiga þeir að minna á og brýna fyrir fólki að það standi vörð um manngildi og grundvallar­mann­réttindi.

Lengri útgáfa birtist í Austur­glugganum sem kom út í vikunni. Hægt er að panta áskrift hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Þrír skipverjar létust þegar Jökull ÞH 299 sökk.
Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp