Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Þórður telur Ísland verði sniðgengið vegna dýraníðsins: „Þið eruð ekki að skilja alvöru þessa máls“

Blóð­meramálið er mikið á milli tannanna á fólki í dag, ekki síst hesta­fólki. Í Facebook hópnum Hestar og reiðmenn hafa ýmsir hestamenn tjáð sig undan­farna daga og má sjá að fólk sé uggandi yfir stöðunni.

Þórður nokkur kemur með langa færslu inni á Hestar og reiðmenn þar sem hann lýsir yfir áhyggjum sínum um ímynd Íslands erlendis en hann vill meina að fólk úti í heimi muni nú sniðganga íslenska hestasölu.

„Jæja, sagði maðurinn og jammogjá, þegar hann hvorki vissi hvað hann átti að segja eða gera. Allt sem hann hafði elskað og verið stoltur af, það sem hafði mótað hann sem þann mann hann er í dag, er allt í einu undir árás, miðju­blettur í ógnar­stórri skotskífu, miðjan í iðu af ásökunum, sem koma úr öllum áttum,“ segir Þórður í byrjun færslunnar.

„Staðreyndin er sú, að hér í hinu stóra útlandi eru morgun­raddir, sem hvetja hestafólk, nær og fjær, til að loka á íslenska hestasölu, boycott, sem það er kallað, alla hestasölu frá þessu hryllilega landi, sem lætur dýraníð, sambærilegt nautaati og kópadrápi, viðgangast.“Þórður segist hafa áður heyrt af blóðtökumerum en verið of bláeygður til að átta sig á alvarleika málsins.

„Ég hafði heyrt um þetta hryllings­fyrirbæri, blóðtökumerar, meira að segja þekkt öðlings­fólk, sem vegna aldurs hætti hrossa­búskap og seldu merarnar sínar í þennan blóð­merabúskap. Ég var svo bláeygur að ég sá fyrir mér fínar nýbyggingar, flísa­lagðar hátt og lágt með fínum hrein­gernings­vænlegum, hvitum flísum. Bása sérsmíðuðum úr riðföstu járni og dýralækna og dýra­hjúkrunar­konur í hreinum hvítum sloppum, sem höfðu sem aðal­markmið dagsins að þiggja blóðgjöf frá velfóðruðum hryssum, sem fengu ástúð,hlýju og góða meðferð, sem umbun fyrir sína fram­leiðslu, sína söluvöru. Mikill andskotans hálfviti er ég og verð að viðurkenna að þetta stolt mitt, yfir að vera Íslend­ingur, ekta Íslend­ingur, þó ég sé búinn að búa erlendis í 42 ár, er örlítið beyglað, eftir að hafa séð þetta video, um meðferð á blóðmerum á Íslandi.“

Að lokum segir Þórður að þetta þurfi að stöðva og hvetur fólk til þess að humma þetta fram af sér.

„Þetta er skammarlegt, á alls ekki að eiga sér stað og á að harðbannað sem allra fyrst og gera eitthvað róttækt til að betrumbæta þann skaða sem skeður er. Þetta er á allra vörum, fólk talar um að aflýsa ferðum til Íslands, hætta að kaupa íslenskar afurðir osf.

Ef þið haldið að þetta verði gleymt í næstu viku, þá eruð þið ekki að skilja alvöru þessa máls. Hummið þetta ekki fram af ykkur, krefjið breytinga á þessu, eða jafnvel bann.“

Sjá einnig: Arnþór forðast fjölmiðla – Hagnast gífurlega á illri meðferð blóðmera
Sjá einnig: MAST rannsakar hryllilega meðferð á blóðmerum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Halla Tómasdóttir segir að margir karlar glími við einmanaleika og óvissu um hlutverk sitt í samfélaginu.

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja