Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Leynigestur flytur ljóð á fjallinu

Úlfarsfell. Deilt er um væntanlegan kirkjugarð við fjallið.
Úlf­ars­fell. Deilt er um vænt­an­legan kirkju­garð við fjallið.

Leynig­estur mun mæta í mið­viku­dags­göngu Ferða­fé­lags Íslands á Úlf­ars­fell klukkan 18 í dag. Veð­ur­horfur eru góðar og reikna má með stjörnu­björtum himni.

Gengið verður undir leið­sögn frá stærra bíla­stæð­inu í Úlf­arsár­dal. Við upp­haf göng­unnar verður sá verð­laun­aður sem fyrstur varð til að giska á nafn huldu­manns­ins. Verðlaun eru veitt hinum get­spaka sem verður að mæta á stað­inn til að hreppa hnossið.

Vís­bend­ingar um leynig­est­inn eru meðal ann­ars Ófeigs­fjörður og Brekkan og Slipp­ur­inn. Nánar um við­burð­inn og aðrar vís­bend­ingar er að finna hér. 

Hefð­bundin dag­skrá er á göng­unni. Á efsta tindi flytur leynig­est­ur­inn, sem er þjóð­þekktur, frum­samið ljóð og kynnir einnig nýút­komið verk sitt sem vakið hefur athygli. Að vanda verður tekið lagið og æfingar kenndar við Haukinn iðk­aðar.

Göngu­hraði er við allra hæfi. Gangan er fjórir kíló­metrar og hækkun um 220 metrar.

Viku­legar göngur undir merkjum Hlið­ar­skrefs­ins og í boði Ferða­fé­lags Íslands hafa verið á Úlf­ars­fell í átta ár. Fjöl­margir leynig­estir hafa komið við sögu á þeim tíma. Þar má nefna saka­mála­drottn­ing­una Yrsu Sig­urð­ar­dóttur, Lilju Alfreðs­dóttur ráð­herra og Sóla Hólm skemmti­kraft.

Allir eru vel­komnir í göng­una. Muna að vera með höf­uð­ljós og vel klædd til úti­vistar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Öskurapi með vesen

Tveir gistu í fangageymslum lögreglu í nótt.
Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027