Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sigrún Elíasdóttir fagnaði útgáfu nýrrar bókar eftir „Urðarlegan“ dag

„Við Urður teljum maka óþarfa á meðan við erum svona ríkar af frábærum vinum“

Sigrún Elíasdóttir
Sigrún Elí­as­dóttir Rit­höf­und­ur­inn fagn­aði útkomu nýrrar bókar Mynd: Facebook

Sigrún Elíasdóttir, rithöfundur og umsjónar­kona hlað­varpsins Myrka Ísland, hélt í gær útgáfuhóf í tilefni af útgáfu annarrar bókar sinnar um persónuna Urði hjá Storytel.

Í Facebook-færslu lýsir Sigrún deginum sem „miðaldra unglings­ástandi“ og segir ýmislegt hafa gengið á áður en hófið hófst.

Hún segir nýju bókina fjalla áfram um „hina bálreiðu en brothættu Urði“ sem sé enn að leita að rómantíkinni á meðan hún reyni að halda öllum boltum lífsins á lofti.

Sjálf segist Sigrún hafa upplifað eigin „Urðar­legan dag“ þegar hún klúðraði tveimur kökum með því að baka þær of lengi og varð svo sein fyrir eftir að lánsbíll foreldra hennar fór að gefa frá sér undarleg hljóð í akstri. Segir hún frá því að hún hafi þurft að skipta um bíl í Borgarnes, flytja veitingar milli bíla og hlaupa á milli verkefna áður en hún náði loks í drykki sem hún hafði gleymt að kaupa deginum áður.

„Sjálf átti ég dálítinn Urðar­legan dag í gær; hafði náð að klúðra tveimur köku­tegundum með því að baka allt of lengi og fannst ég því vera frekar fátæk af veitingum fyrir hófið, þrátt fyrir aðstoð Costco í þeim málum. Engum að óvörum lagði ég of seint af stað, var orðin sveitt áður en ég uppgötvaði að lánsbíll foreldra minna sem ég var á, gaf frá sér torkennilegt bank við akstur yfir 80km. Sem varð til þess að ég kreisti bíllyklana út úr hinum vinnandi unglings­manni, tók af honum minn eigin bíl í Borgarnesi, selflutti veitingarnar og fleira drasl á milli og var því orðin enn seinni og sveittari en ég ætlaði mér. Átti svo eftir að kaupa kalda drykki í búð í Reykjavík, sem ég hafði gleymt daginn áður.“

Þrátt fyrir allt hafi útgáfu­hófið tekist vel með hjálp vinkvenna hennar sem komu með veitingar og aðstoðuðu við undir­búninginn.

„Við Urður teljum maka óþarfa á meðan við erum svona ríkar af frábærum vinum,“ skrifar Sigrún meðal annars og bætir við að hún nenni ekki lengur að deita.

Hún þakkar einnig hlustendum, vinum og samstarfs­fólki hjá Storytel fyrir stuðninginn, auk Birnu Péturs­dóttur sem les bókina upp.

„Bókin er einhvern veginn miklu fyndnari úr þínum munni en í höfðinu á mér,“ skrifar hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Mette Frederiksen segir gagnrýni á orðaval sitt ekki lýsa afstöðu sinni. Ummæli hennar í stjórnmálahlaðvarpi hafa vakið umræðu í Danmörku.
Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Stefnir í rólegt stuð

Dóttir.x tilnefnd til Music Moves Europe-verð­launanna 2027