Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Sigrún Birgisdóttir: „Einhverfir verða fyrir töluverðum fordómum“

(Mynd: Bjarney Lúðvíksdóttir.)
(Mynd: Bjarney Lúð­víks­dóttir.)

„Það er talið að yfir 2% fólks séu á einhverfu­rófinu og ég yrði ekki hissa ef það væru fleiri. Ég fæ fimm til sex beiðnir á viku frá fullorðnu fólki sem leitar til samtak­anna um hvar það getur farið í einhverfu­greiningu,“ segir Sigrún Birgis­dóttir, framkvæmda­stjóri Einhverfu­samtakanna. Sigrún segir að erfðir séu taldar aðal­ástæða einhverfu eða um 80%. „Þetta gengur í ættir. Það er mjög algengt að í kjölfar þess að börn fái greiningu að annað foreldrið komi einnig í greiningu. Það sér maður nokkuð oft.“

Sigrún segir að áherslur Einhverfu­samtakanna snúist um einhverfu­vænna samfélag fyrir alla og þjónustu við hæfi. „Baráttu­málin snúast um að uppfræða fólk og samfélagið. Það vantar betri heilbrigðis­þjónustu; okkar fólk fær mjög gjarnan synjun ef það sækist eftir þjónustu geðheilsu­teyma og það er ekki þekking til staðar til að sinna því. Margir sálfræðingar treysta sér ekki til að taka við einhverfu fólki og það er skortur á þekkingu á spítölunum, í skóla­kerfinu, félags­þjónustunni og í rauninni bara alls staðar.“

Það eru for­dómar í kerf­inu og það eru í raun­inni for­dómar alls staðar.

Sigrún segir að vegna þessa sé fólk á einhverfu­rófinu oft ansi brotið. „Það er mikið talað um að fólk lendi í kulnun því það er stöðugt að reka sig á veggi. Það skortir skilning; einhverfir eiga mjög oft erfitt með að skipuleggja sig. Stýri­færnin er kannski ekki nógu góð eða ekki til staðar og það er oft litið á einhverfar konur sem sóða eða druslur af því að heimili þeirra eru kannski ekki eins og hjá fólki almennt af því að þær ráða einfald­lega ekki við að skipuleggja verkin og framkvæma. Það eru fordómar í kerfinu og það eru í rauninni fordómar alls staðar. Og fólk er stöðugt að reka sig á. Þetta brýtur fólk niður.“

Sigrún segir að draumurinn sé að sett verði á fót þjónustu- og þekkingar­miðstöð fyrir fólk á einhverfu­rófi sem og fyrir fólk með þroska­hömlun og bendir hún á að aðstæður þess fólks séu kannski litlu skárri. „Það þarf að byggja upp þekkingar­teymi sem geta stutt til dæmis við geðheilsu­batteríið. Við vitum að við höfum ekki það marga sérfræðinga að það sé hægt að byggja upp fullkomna þjónustu á öllum stöðum en það gæti verið farteymi til aðstoðar ef á þyrfti að halda svo fólki væri ekki vísað frá. Það væri einnig hægt að vera með þekkingarhóp varðandi til dæmis atvinnumál og skólamál sem gæti farið með fræðslu á viðkomandi staði eftir þörfum.“

(Mynd: Ljós­myndir Rutar og Silju.)

Frábær eins og þau eru

Sigrún á tvo uppkomin börn sem bæði eru á einhverfu­rófinu.

Þau eru bara með öðru­vísi tauga­þroska og eru frá­bær eins og þau eru.

„Kannski var kerfið að sumu leyti mannlegra og að öðru leyti ekki þegar þau voru börn en þá beið maður ekki í tvö til þrjú ár eftir greiningu eins og staðan er í dag. Þá voru þetta kannski nokkrir mánuðir. Að því leytinu til var það mun skárra. Það sama átti við um þjónustu til dæmis talmeinafræðinga en þar var nokkurra mánaða bið en núna er hún yfir ár og jafnvel tvö ár. Það er ýmislegt sem var skárra en þekkingin var nátt­úrlega ekki næstum því eins mikil og hún er í dag. Á þeim tíma miðaðist allt við að reyna að breyta börnunum þannig að þau yrðu sem mest „normal“. En við vitum í dag að það er ekki rétta nálgunin og getur beinlínis verið skaðlegt fyrir börnin; við viljum að þau öðlist færni til sjálfs­hjálpar og geti sem mest bjargað sér sjálf og liðið sem best í sínu hvað svo sem þau taka sér fyrir hendur. Þau eru bara með öðruvísi tauga­þroska og eru frábær eins og þau eru. Það þarf ekki að breyta neinu. Við erum öll misjöfn. Við eigum ekki að vera öll eins. Það er eiginlega bara málið.“

Varð umburðarlyndari

Sigrún segist hafa dottið út af vinnu­markaði eftir að hún eignaðist börnin og hafði það fjárhagsleg áhrif á heimilið. „Lífeyris­sjóðurinn minn er hverfandi lítill. Þetta er ekki óalgengt þegar mæður fatlaðra barna eru annars vegar. Það var í rauninni börnunum fyrir bestu að ég væri heima­vinnandi og ég sökkti mér ofan í fræðin og las allt sem ég gat til þess að reyna að koma þeim sem lengst áleiðis í lífinu og það tókst bara bærilega; sennilega betur heldur en ef ég hefði treyst eingöngu á skóla­kerfið þegar kom að kennslunni.“

Það var margt á þeim tíma í grein­ing­ar­ferl­inu sem var í raun­inni óhollt and­legri heilsu manns.

Sigrún segir að þar sem þekkingin á málum einhverfra hafi á þessum tíma ekki verið eins mikil og hún er í dag þá hafi þeim foreldrunum ekki verið gefin sú von að börnin myndu ná nærri því eins langt og raunin varð. „Það var margt á þeim tíma í greiningar­ferlinu sem var í rauninni óhollt andlegri heilsu manns því manni var stöðugt bent á veikleika barnanna og hvað við mættum gera ráð fyrir að þau gætu ekki lært eða ráðið við. Ég veit að þetta hefur skánað en ég get ekki sagt að þetta sé fullkomið. Það er langt í land. En vonandi lagast það með aukinni fræðslu. Við þurfum að hætta að horfa á börnin út frá meðal­kúrfum og staðal­frávikum því hvert og eitt er einstakt.“

Sigrún hefur ýmislegt lært af því að eiga börn á einhverfu­rófinu. „Ég lærði fljótt umburðar­lyndi gagnvart öllu fólki. Áður fyrr þegar maður var kannski í verslun og sá einhvern taka kast eða eitthvað var í gangi þá hugsaði maður með sér hvað viðkomandi væri illa upp alinn eða hvað gengi að þessum manni. Núna hugsa ég ekki á þann hátt. Núna hugsa ég með þér að viðkomandi eigi erfitt. Ég hef kynnst alls kyns frábæru fólki í gegnum þetta starf. Alveg ótrúlega flottu fólki. Þannig að þetta gefur manni virkilega mikið.“

Töluverðir fordómar

Sigrún segir að fólk á einhverfu­rófinu verði fyrir tölu­verðum fordómum. „Samfélag okkar byggir á því að setja alla í box. Þegar fólk sker sig úr þá er það oft litið hornauga. Og það tekur gríðar­lega á einstaklinginn að vera svona í jaðarhópi. Það eiga allir að vera eins og skóla­kerfið er byggt þannig upp.“

Hvað finnst Sigrúnu um skóla án aðgreiningar?

„Skóli án aðgreiningar er gríðar­lega falleg hugsun en þá þarf skóla­húsnæðið að bjóða upp á það og taka tillit til skynjunar og þarfa allra og ég tala nú ekki um mönnun, þar vantar mikið upp á að dæmið gangi upp. Risarými fyrir 60-70 börn er ekki fyrir nein börn og það skiptir ekki máli hvort þau séu einhverf eða ekki. Það á ekki að bjóða neinum upp á þetta svo sem með tilliti til hávaða. Skóli án aðgreiningar er falleg hugsun eins og ég sagði en hún gengur ekki upp ef hvortki húsnæði né mannafli býður upp á það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum