Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ljúffengur wok-pönnuréttur

Asískir wok-pönnu­réttir eru í raun ein­faldir í gerð og þægi­legir að útbúa fyrir fjöl­skyld­una enda allt eldað á einni pönnu. Í slíkum réttum eru oft mörg inni­halds­efni og því sýn­ast þeir gjarnan flókn­ari en þeir eru í raun og veru.

Ágætt er að koma sér upp grunni fyrir asíska mat­ar­gerð sem auð­veldar mat­reiðsl­una. Þá er allt við hönd­ina þegar upp kemur löngun til þess að elda góm­sæta asíska rétti. Hér er upp­skrift að ljúf­fengum wok-pönnu­rétti. Tilvalið er að sjóða núðlur og bæta út í hann, en svo er líka hægt að bera hann fram einan og sér.

WOK-RÉTTUR MEÐ SVÍNAKJÖTI, KASJÚHNETUM, LÍMÓNU OG MYNTU
fyrir 4

300 g svína­lund
1 tsk. kórí­and­er­fræ
½ tsk. svört pip­ar­korn
1 tsk. salt
¼ tsk. sykur
1 límóna (helst líf­ræn), börkur rif­inn
2 msk. jarð­hnetu­olía
2-3 msk. bragð­lítil olía til steik­ingar
1 tsk. ferskt engi­fer, saxað smátt
1 hvít­lauks­geiri, sneiddur
1 græn paprika
3 vor­laukar
2 msk. kasjú­hnetur, gróft hakk­aðar
½ tsk. salt*
1 msk. kjúklinga­kraftur bland­aður í
2 dl af heitu vatni
safi úr einni límónu
1 tsk. taí­lensk fiski­sósa
2 msk. fersk mynta, söxuð

Skerið kjötið í mátu­lega stóra munn­bita. Myljið pip­ar­korn og kórí­and­er­fræ í mort­éli. Setjið salt, sykur og rif­inn límónu­börk og jarð­hnetu­olíu í skál og blandið krydd­blönd­unni saman við. Setjið kjöt­bit­ana út í og veltið þeim vel upp úr blönd­unni.

Hitið wok-pönnu og steikið kjötið upp úr olíu í 2-3 mín. Setjið til hliðar. Setjið næst engi­fer og hvít­lauk á pönn­una og steikið í örlitla stund, bætið papriku og vor­lauk saman við ásamt kasjú­hnetum og salti. Setjið kjötið út á pönn­una ásamt kjúklinga­soði, límónusafa og fiski­sósu.

Hrærið vel saman og látið malla saman í 5-7 mín. Stráið að lokum myntu yfir rétt­inn.

SESAMOLÍU- OG SOJASÓSA

2 dl tamari-sojasósa
2 dl kjúklinga­soð
1 msk. maís­sterkja (maizena)
1 msk. hun­ang eða aga­vesíróp
1 tsk. sesam­olía
1 tsk. hrís­grjóna­edik
1 tsk. engi­fer, fínt saxað
2 hvít­lauks­geirar

Setjið öll inni­halds­efni í pott og hitið að suðu. Leyfið sós­unni að malla í um 3 mín. til að sósan þykkni.

Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni