Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Sonja segir sögu sína af stúlknaheimilinu: „Ég er búin að vera hrædd síðan ég var á Bjargi“

„Ég er dauðhrædd. Ég er búin að vera hrædd síðan ég var á Bjargi.“

Þetta segir Sonja Ingva­dóttir, en hún er ein þeirra stúlkna sem vistaðar voru á stúlkna­heimilinu Bjargi á sjöunda áratugnum. Hún var send á Bjarg árið 1965, þegar hún var rúmlega 14 ára gömul, og var vistuð þar í tvö ár. Á Bjargi dvöldu 20 stúlkur á meðan heimilið var starfrækt.

Sonja var ein þeirra sem fengu í gegn að heimilinu var lokað á sínum tíma, árið 1967, vegna ofbeldis og illrar meðferðar sem hún segir þar hafa viðgengist, líkt og margar konur sem dvöldu þar hafa áður lýst. Hún kærði forsvars­menn Bjargs, en hafði ekkert upp úr því –  að lokum var ekki talin ástæða til opinberrar máls­höfðunar. Þær konur sem störfuðu á heimilinu fóru úr landi og ekkert var aðhafst frekar í málinu. Bjarg var eitt þeirra vist­heimila sem ríkið greiddi síðar sanngirnis­bætur vegna og þótti sennilegt að stúlkurnar sem þar voru vistaðar hefðu þurft að þola óforsvaranlega meðferð þeirra sem þar stjórnuðu og störfuðu.

Séra Auður Eir Vilhjálms­dóttir, sem síðar varð fyrsta konan á Íslandi til þess að taka prest­vígslu og varð hátt skrifuð í samfélaginu, vann á heimilinu allan starfs­tíma þess, en hefur ávallt neitað þeim ásökunum sem stúlkurnar sem dvöldu þar hafa sett fram.

Fjallað var um Bjarg í fjöl­miðlum á sínum tíma eftir að upp komst um harðræðið þar, þegar heimilinu var lokað. Löngu síðar, þegar úttekt vistheimila­nefndar kom til skjalanna, gerði DV yfirgrips­mikla umfjöllun um Bjarg og önnur vist­heimili þar sem börn voru sögð hafa sætt illri meðferð.

Sonja Ingva­dóttir segir sögu sína opinber­lega í fyrsta sinn í nýjasta tímariti Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram