Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Í góðum málum/Í slæmum málum

Vítalía skemmti sér drottningalega á Ítalíu í sumar.
Vítalía skemmti sér drottn­inga­lega á Ítalíu í sumar. Mynd: Instagram-skjáskot

Í góðum málum

Vítalía á fullri ferð áfram.

Vítalía Lazareva virðist í mjög góðum málum þessa dagana, ef marka má Instagram-reikning hennar. Eins og alþjóð veit hefur hún ekki átt sjö dagana sæla frá því að hún upplýsti þjóðina um meint kynferðis­brot þriggja eldri manna í heitum potti í byrjun ársins. Hún hefur nú kært mennina, sem svo kærðu hana til baka fyrir upplognar sakir. En í stað þess að hírast á ísköldu landinu sem japlaði á máli hennar líkt og það væri harðfiskur með smjöri, ákvað hin unga Vítalía að söðla um og dvelja á Ítalíu í sumar. Og þar hefur hún blómstrað eins og sjá má á Instagram-ljós­myndum hennar. Þar sést hún alsæl á svip um borð í hraðbát og nýtur bæði hraðans og góða veðursins. Þá hefur hún einnig ferðast til Berlínar í sumar og notið góðs matar og lífsins. Hún virðist líka enn meira fitt en venjulega og yfirhöfuð má segja að hún glói. Það má því búast við að hún komi endurnærð frá sumrinu og tilbúin í slaginn sem fram undan er.

Í slæmum málum

Lög­reglan að störfum Mynd/LG

Íslenska samfélagið er í slæmum málum um þessar mundir. Ég gæti nefnt vaxta­hækkanir húsnæðis­lána eða heilbrigðis­kerfið. Ég gæti líka nefnt sumarið eða misskiptingu auðs í landinu, en nei, ég vil tala um að því er virðist tíðari ofbeldis­verk í samfélaginu, oftast, eðli málsins samkvæmt, á djamminu. Ef dagbækur lögreglu eru skoðaðar má sjá að undan­farið hafa borist fréttir af ofbeldi og brjálæði og á lögreglan hrós skilið fyrir að standa í að koma böndum á hina seku. Ef við skimum yfir fyrir­sagnir undan­farinna vikna má sjá setningar eins og: Hrottaleg hópárás í Breið­holti, Hlaut stungusár í vopnuðu ráni, Hópur manna réðst á einn og lét höggin dynja, Hnífa­maður stakk mann í bakið og Illa leikinn í andliti eftir þrjá árásar­aðila, og er þetta aðeins brotabrot. Þá virðast sífellt fleiri ganga berserks­gang, undan­farið hefur það gerst í miðbæ Reykja­víkur, í Kópavogi og á bráða­móttökunni svo eitthvað sé nefnt. Svo sá íslenskt samfélag ofbeldi í sinni verstu mynd á Blönduósi á dögunum þar sem tvær manneskjur létu lífið. Hvort um sé að kenna geðheil­brigðis­kerfi sem er í molum eða einhverju öðru skal ósagt látið, en eitthvað virðist það vera.

Nýjasta Mannlífs blaðið má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“