Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Þorgerður:„Nema hann telji konur best geymdar bak við eldavélina líkt og forveri hans sagði forðum“

Formaður Viðreisnar, Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir, segir á Facebook-síðu sinni að hún eigi „það stundum til að hækka róminn enda brýndi pabbi það fyrir mér að tala hátt og skýrt.“

Bætir við:

„Ekki vera feimin við það sem verið er að segja, sér í lagi ef málið er brýnt og á erindi við fólk, sagði karlinn hann pabbi. Og það fannst mér í dag þegar ég spurði formann Framsóknar­flokksins í óundirbúnum fyrir­spurnum um plan ríkis­stjórnarinnar gagnvart verð­bólgunni.“

Hún nefnir að „marg­ítrekað hefur verið bent á agaleysi ríkis­stjórnar í ríkis­fjármálum þannig að eftir standa Seðla­bankastjóri og aðilar vinnu­markaðarins dálítið einir í vörninni gegn verðbólgu. Svörin voru rýr og frekar til þess fallin að ýta undir gagnrýni um aðgerðar­leysi ríkis­stjórnar en hitt.“

Þorgerður Katrín segir að „í raun voru einu svör formanns Fram­sóknar að ég hækki róminn of mikið! Svei mér gott að hann sitji ekki hjá mér á lands­leikjum! Nema hann telji konur best geymdar bak við elda­vélina líkt og forveri hans sagði forðum. Alla vega svörin voru rýr fyrir fólkið og fjöl­skyldur landsins á þessum verðbólgu- og þenslu­tímum.“

Segir einnig:

„Það gilti þó ekki um aðra ráðherra sem ég spurði líka í dag í undir­búnum fyrir­spurnum um önnur efni. Rafræn skilríki fyrir fatlað fólk eru í farvatninu og félagsmálarað­herra með augun á boltanum þótt gagnrýna megi að ekki hafi verið gert ráð fyrir aðgengi allra að rafrænum skilríkjum frá upphafi. En skilningur, metnaður og vilji ráðherra er sannanlega til staðar. Það er gott.“

Þorgerður Katrín færir í tal að „matvæla­ráðherra var ekki tilbúinn með úrræði til að lækka tolla og gjöld svo matar­karfan geti orðið ódýrari þrátt fyrir að ég hafi lagt þessa fyrir­spurn fram um aðgerðir stjórn­valda gegn verðbólgu fyrir 5 mánuðum síðan.

Ráðherra sagðist þó vera að skoða að stærstu fram­leiðendur landbúnaðar­vara gætu ekki boðið í tollkvóta gagngert til að koma í veg fyrir að neytendur fái ábatann, af þó þeim litlu toll­kvótum sem eru fyrir. Þetta þarf ekki að vera svona og ráðherra gerir sér grein fyrir því.“

Heldur áfram:

„Hefði auðvitað kosið aðgerðir strax af hálfu stjórn­valda svo verð á matar­körfunni geti lækkað en þarna var vonartýra. Alveg eins og þegar fjármála­ráðherra sagðist um daginn vera reiðu­búinn til að rýmka fyrir tollum og gjöldum á landbúnaðar­afurðum gegn bein­greiðslum til bænda. Líkt og gert var með grænmetið á sínum tíma. Trúa á samkeppni, frábærar íslenskar landbúnaðar­vörur og frelsi. Það er hyggilegt að gera og öllum til hagsbóta, bændum sem neytendum.“

Hún segir að „áframhald af núverandi íhalds­mennsku og úreltu kerfi í land­búnaði er engum til góðs. Þriðju fyrir­spurnina um aðgengi fatlaðra að háskóla­námi lagði ég einnig fram fyrir margt löngu síðan. Háskóla­ráðherra hefur nýtt tímann vel og kom vel undir­búinn. Tækifæri fatlaðs fólks eru of fá og hamlandi en lítið hefur verið gert eftir að starfs­tengt diplomanám fyrir fólk með þroska­hömlun hófst í Háskóla Íslands haustið 2007. Þessu ætlar ráðherra nú að breyta og er það mikið fagnaðar­efni því nú hefur formlegt skref verið stigið til að auka framboð háskóla­náms fyrir fólk með þroska­hömlun.

Er ætlunin að virkja betur samvinnu háskóla og þau tækifæri sem hægt er að bjóða þessum hópi fólks. Einnig er ætlun að endur­skoða reikni­líkanið og byggja inn hvata fyrir háskóla til að opna dyr sínar.“

Segir að endingu:

„Þetta gerir ráðherra innan síns fjárhags­ramma en með því að forgangs­raða. Hér eiga Lands­samtökin Þroska­hjálp stóran hlut að máli með því að halda öllum við efnið. Vel gert öll. Þegar þetta eru svörin þá getur verið gaman í þinginu þótt leyndar­hyggja ríkis­stjórnar­flokkanna vegna skýrslu ríkis­endur­skoðanda um Lindar­hvol hafi sett dökk blett á daginn.

Ekki að þau makalausu vinnu­brögð komi samt á óvart hjá flokkum sem eru vanir að geta troðið skýrslum undir stól; og komast upp með það. En það er rétt að draga fram það sem vel er gert. Og gott að finna metnað hjá ráðherrum fyrir sínum mála­flokki. Þótt gamal­kunnar og framsóknarlegar hrút­skýringar hafi flotið inn á milli!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim