Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Jón veit ekki hvort hann hafi farið með rangt mál: „Má vera að þar skeiki einhverjum nöfnum“

Jón Gunnarsson.
Jón Gunn­ars­son.

Á mánudag er aðeins eitt mál á dagskrá á Alþingi; önnur umræða um útlendinga­frumvarp Jóns Gunnars­sonar dómsmála­ráðherra.

Kemur fram á ruv.is að frum­varpið var lagt fram í fimmta sinn á þingi í haust og sjálfur Jón segir það löngu tímabært að ljúka þessu máli:

„Ég geri mér vonir um að það takist í þessari atrennu,“ segir Jón og bætir við að samkomulag sé um að ljúka málinu.

Hann býst ekki við frekari sátt um frum­varpið:

„Ég held að þessi mál séu þess eðlis að um þau eru skiptar skoðanir og ég geri mér engar vonir um að það verði einhver allsherjar­sátt í þessum málum.“

Kom fram í máli Jóns í viðtali á Bylgunni fyrir helgi að honum finndist stjórn­leysi ríkja í útlendinga­málum hér á landi; nefndi hann að allir hælis­leitendur sem var vísað úr landi í skjóli nætur í nóvember væru komnir aftur til landsins.

Dómstólar hafa úrskurðað að hluti af fólkinu eigi rétt á efnislegri meðferð á Íslandi.

Lögmaðurinn Magnús Davíð Norðdahl sagði aftur á móti í samtali við ruv.is að dómsmála­ráðherra færi ekki með rétt mál, en umbjóðandi hans, sem á rétt á endur­upptöku, sé til dæmis enn pikk­fastur í Grikk­landi.

Aðspurður hvort Jón hafi farið með rangt mál, segist hann hreinlega ekki vita það:

„Þessar upplýsingar hef ég frá þeim sem um þessi mál véla; að allir þeir sem voru fluttir með leigu­flugvél út á sínum tíma hafi verið komnir til landsins. Það má vel vera að þar skeiki einhverjum einstaka nöfnum til eða frá,“ segir hann og verður áfram tíðrætt um kerfið hér á landi:

„Þetta eru auðvitað einhverjir veik­leikar í okkar kerfi að fólk sem hefur fengið hér fulla máls­meðferð og haft löglærðan fulltrúa sér við hlið allan tímann og verið synjað hér um vernd að skuli vera mætt hér aftur,“ sagði Jón að endingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim