Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Maria úr Pussy Riot óttast þriðju heimsstyrjöldina: „Það yrði í raun algjör martröð“

Maria Alyokhina
Maria Alyok­hina Mynd: Björgvin Gunnarsson

Hópur sem kallar sig Rússar gegn stríði mótmæltu fyrir utan Rússneska sendi­ráðið í Reykjavík á laugar­daginn. Maria Alyokhina úr pönkkhljómsveitinni og aktívista­hópnum Pussy Riot hélt ræðu á fundinum.

Mótmælin voru partur af alþjóð­legum mótmælum Rússa en fóru þau fram víða um heim á laugar­daginn. Voru þau haldin í tilefni þess að tvö ár voru liðin frá því að stjórnar­andstæðingurinn Alexei Navalny var hand­tekinn fyrir upplognar sakir og dæmdur í 11 ára fangelsi í Rússlandi en áður hafði verið eitrað fyrir honum. Var því lögð áhersla á pólitíska fanga Vladimirs Pútíns Rúss­lands­forseta, á mótmælunum.

Mótmælendurnir voru um 20 talsins en þau stilltu sér upp fyrir framan sendiráð Rússlands, sum hver með límband fyrir munninn, haldandi á skiltum sem sýndu nokkra af þúsundum pólitískra fanga Rússlands.

Blaða­maður Mannlífs var á staðnum og tók viðtal við Mariu Alyokhina úr Pussy Riot-hópnum en hún hélt ræðu á mótmælunum. Hún hefur sjálf mátt sæta ofsóknum yfirvalda í Kreml en árið 2012 var hún dæmd, ásamt tveimur öðrum konum úr Pussy Riot, til tveggja ára fangelsis­vistar fyrir gjörning sem þær gerðu í kirkju í Moskvu. Hún kom til Íslands fyrir viku og verður að hennar sögn í eina til tvær vikur í viðbót.

Frá því að stríðið hófst í Úkraínu hefur Maria verið handtekin í nokkur skipti vegna opinbers stuðnings hennar við Úkraínu en í apríl 2022 ákvað hún að flýja heima­landið, eftir að henni hefði verið tilkynnt af yfir­völdum að hún yrði dæmd til vistar í einhverskonar „hegningar­nýlendu“ en Ragnar Kjartansson lista­maður hjálpaði henni meðal annars að flýja Rússland.

„Árið 2021 fóru þeir að handtaka mig fyrir það að vera ég sjálf, ég var ekki að gera neitt. Í þeirra augum var ég hættuleg fyrir að vera ég sjálf. Vegna þess að lögreglan er enn að rannsaka mál mín í Rússlandi, hugsa ég að mér yrði stungið inn í fimm, sex ár ef ég kæmi aftur þangað,“ sagði Maria í samtali við Mannlíf. „Fyrir mér er þetta ekkert mikið vandamál fyrir mig en ég held að ef maður hefur þann möguleika, og hann hef ég, til að styðja við Úkraínu og safna pening fyrir fólkið þar, þá þarf ég að gera það. Nú þarf að einblína algjör­lega á Úkraínu og á sigur gegn Rússlandi því ef að Úkraína vinnur ekki þetta stríð munu fleiri lönd verða fyrir árásum og þriðja heim­styrjöldin hefjast. Það yrði í raun algjör martröð.“

Sagði hún einnig að allt það sem nú er að gerast komi fólki í Rússlandi, að minnsta kosti það fólk sem er á móti Pútín, ekkert á óvart. „Því miður er þetta ekki einhverjar hvatvísar ákvarðanir heldur partur af keðju kúgunnar, þróun sem hefur átt sér stað frá byrjun í raun, en þó aðallega upp úr 2011-2012.“

Foreldrar Mariu eru enn í Moskvu en henni tókst að koma barns­föður sínum og syni úr landi í tæka tíð. „Ég kom þeim úr landi eftir að rússneskar öryggsissveitir voru farnar að heimsækja þá en þetta gerði ég líka tveimur vikum fyrir herkvaðninguna en barns­faðir minn er á þeim aldri að hann er gjald­gengur og sonur minn er næstum því 16 ára og því einnig gjald­gengur. Og þetta er mín helsta martröð. En Foreldrar mínir eru þar enn, og ég sakna þeirra mjög mikið,“ sagði Maria og beygði smá af.

Eins og áður segir hefur Maria þurft að dúsa í fangelsi í nokkur ár í Rússlandi en hvernig var komið fram við hana þar? „Það var misjafnt eftir fanga­vörðum. Flestir fanga­verðir bera virðingu fyrir pólitískum föngum, sérstak­lega ef þú ert kona. Þeir bera virðingu fyrir fólki sem trúa því sem það stendur fyrir. En ekki allir samt, ég hef því miður séð það, sérstak­lega eftir að stríðið byrjaði að fanga­verðir og lögreglu­menn hafa verið algjör­lega heila­þvegnir. Áróðurinn er mjög svipaður og sást í Þýska­landi Nasismans. Þetta er alræðis­hyggju­heilaþvottsáróður. Og hann virkar. Og við getum ekki sagt að þetta sé bara í sjón­varpinu og gleymt þessu. Þetta er heila­þvottur.“

En heldur Maria að eitthvað myndi breytast ef Pútín myndi deyja?

„Við verðum að krefjast alþjóðlegra réttar­halda yfir Pútín fyrir stríðs­glæpi og allra þeirra sem bera ábyrgð á þessu stríði. Þetta þyrftu að vera opinber réttarhöld þar sem fórnar­lömb stríðsins myndu bera vitni. Án opinberra réttar­halda, án frásagna um það sem er í gangi, gæti framtíðin orðið sú sama og nútíminn og sagan gæti endur­tekið sig. Akkurat núna er Pútín og hans ríkis­stjórn ekki að gera neitt nýtt, þeir eru að nota gamlar aðferðir, stundum Nasista­áróður, stundum Sovíet áróður eins og þegar þeir kalla okkur „óvini ríkisins“ og „óvini fólksins“. Til þess að geta átt framtíð, verðum við að skilja hvað er að gerast núna. Og ég held að dauði Pútíns yrði ekki nein alvöru lausn, því miður.“

Hér fyrir neðan má sjá ljós­myndir og hlusta á eina af ræðunum sem fluttar voru á mótmælunum á laugar­daginn. Það var Björgvin Gunnarsson sem tók ljós­myndirnar og mynd­skeiðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim