Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Björn Leví dró sama sætið á þingi þriðja árið í röð: „Teach me your ways!“

Björn Leví Gunnarsson Pírati
Björn Leví Gunn­ars­son Pírati

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata dró sama sæti á þingi þriðja árið í röð á dögunum. Líkurnar eru litlar.

Við upphaf nýs þings þurfa þingmenn að draga númer úr potti sem segir til hvar þeir muni sitja hvert ár. Þingmaður Pírata, Björn Leví Gunnarsson dró sama númerið þriðja árið í röð en það er númerið 42. Skrifaði hann stutta færslu á Twitter um þessa skemmtilegu tilviljun:

„Þriðja skiptið í röð sem ég dreg sæti nr. 42“

Vakti staðreyndin nokkra kátínu hjá fylgjendum hans á samfélags­miðlinum og voru flestir á því að líkurnar á þessu gætu ekki verið miklar.

Félagi hans, Píratinn Smári McCarthy skrifaði eftir­farandi athugasemd. „Djöfull er það orðið ólíklegt! Hvernig?! Teach me your ways!“

Björn svaraði að bragði: „Ég sagði fólki bara að ég ætlaði að draga 42. Ég hugsaði um hvernig ég ætlaði að teygja hendina inn í boxið og hræra aðeins í þangað til ég finndi 42 en svo gleymdi ég því og tók bara fyrstu kúluna sem ég lenti á … voila = 42.“

Þegar Hilmar nokkur spurði hverjar líkurnar séu svarar Björn: „Jæks, það er slatti flókið að reikna það. Sérstak­lega af því að það þarf að taka tillit til fólksins sem dregur á undan mér og dregur ekki 42. Í fyrsta skiptið sem ég ætlaði að draga 42 til dæmis þá var ég minnir mig næst síðastur …“

Þorsteinn nokkur svaraði því: „Ja, fer smá eftir því hvernig spurningunni er hagað. En ef þú spyrð í upphafi dráttar, hverjar eru líkurnar á að þú fáir 42, þá skiptir röðin svo sem engu máli.“

En hverjar eru þá líkurnar á þessu? Mannlíf heyrði í Excel sérfræðingi sem sérhæfir sig í tölfræði. Hann vildi ekki koma undir nafni af ótta við að verða ofsóttur af kvenfólki vegna stærðfræði­þekkingar sinnar. „Í stuttu máli: líkurnar á því að fá sama sæti (númer 42) þrjú ár í röð er einn á móti 125.047. Líkurnar á því að fá eitthvað sæti þrisvar í röð er 1 á móti 3.969,“ svaraði sérfræðingurinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“