Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Kennarar í VMA gagnrýna Ásmund harðlega: „Ekki í anda menntastefnu stjórnvalda“

Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra
Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra

Kennara­félag Verk­mennta­skólans á Akureyri gagnrýnir vinnu­brögð Ásmundrr Einars Daðasonar.

Fyrir­huguð sameining MA og VMA hefur vægast sagt fallið í grýtan jarðveg hjá nemendum og kennurum beggja skóla. Virðast aðeins skóla­stjórnendur þeirra vera fylgjandi henni en fyrir stuttu tilkynnti Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamála­ráðherra, að það stæði til að sameina skólanna. 

Kennara­félag Verk­mennta­skólans á Akureyri sendi frá sér tilkynningu í gær um málið og er hægt að lesa hana hér fyrir neðan:

Kennara­félag VMA mótmælir harðlega vinnu­brögðum mennta- og barnamála­ráðherra og stýrihóps um eflingu framhalds­skóla í tengslum við fyrir­hugaða sameiningu VMA og MA. Skv. skýrslu stýri­hópsins sem birt var meðan á opnum fundi mennta- og barnamála­ráðherra í Hofi stóð, þriðjudaginn 5. september, er markmið sameiningar m.a. að auka stoð­þjónustu við nemendur, fjölga náms­brautum, efla iðn- og verknám og auka námsval nemenda. Annað kemur þó á daginn þegar rýnt er í efni skýrslunnar. Af henni má berlega ráða að megin­markmið með sameiningu skólanna er hagræðing og sparnaður sem m.a. kemur fram í fækkun náms­ráðgjafa, sálfræðinga og kennara og stækkun nemenda­hópa. Þetta fer gegn mennta­stefnu stjórn­valda þar sem lögð er áhersla á vellíðan nemenda og jöfn tækifæri til náms, óháð t.d. móðurmáli eða námslegri stöðu.

Í skýrslu Fjármála­ráðuneytisins (2008:5) annars vegar og skýrslu Ríkis­endur­skoðunar (2021:15) hins vegar um sameiningar ríkis­stofnana kemur fram að sameining og viða­miklar breytingar skili ekki þeim árangri sem vænst er, eða í færri en 15% tilvika, vegna þess að:

  • Markmið og fram­tíðarsýn væri ekki nógu skýr eða ekki útskýrð nógu vel.
  • Fjárhagsleg samlegð væri ofmetin.
  • Undir­búningi og skipulagningu væri áfátt.
  • Ekki tækist að kveikja nægan áhuga á sameiningunni.
  • Starfs­mannamálum væri ekki sinnt nógu vel.
  • Breytinga­starf lognaðist út af áður en því væri lokið.

Ekki verður annað séð en að allir þessi þættir einkenni vinnu­brögð mennta- og barnamála­ráðherra og stýrihóps hans þegar kemur að fyrir­hugaðri sameiningu VMA og MA. Ljóst má vera að of geyst er af stað farið og niður­staðan er ekki í anda mennta­stefnu stjórn­valda né nýrra farsældar­laga, þar sem hagsmunir nemenda eiga að vera hafðir að leiðar­ljósi. Kennara­félag VMA sér sóknar­færi í samstarfi framhalds­skólanna tveggja en leggst gegn fyrir­hugaðri sameiningu skólanna á þeim forsendum sem koma fram í skýrslu stýri­hópsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp