Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Hvítasunnudagur á Hallveigarstíg: „Á næsta augnabliki heyrði ég skothvell og drengurinn datt niður“

Það er hvíta­sunnudagur. Tveir drengir leika sér við varðstöð Bandaríkja­hers við Hall­veigarstíg og annar þeirra fer upp í bíl á vegum hersins og startar bílnum. Hermaður sem hafði haft afskipti af þeim rétt áður, rekur drenginn út úr bílnum og drengurinn hlýðir. Hermaðurinn gengur upp að drengnum og leggur byssu­hlaup við gagnauga hans. Og tekur í gikkinn. Lífvana drengurinn dettur í jörðina. Þessi hvíta­sunnudagur er orðinn kolsvartur. Þetta var árið 1942.

Í blaðinu Íslend­ingur er atvikinu svo lýst:

Á hvíta­sunnudag kl. 11 árdegis gerðist sá óheyrilegi atburður í Reykjavík, að amerískur hermaður skaut 12 ára dreng til bana, er var að leik með öðrum dreng nálægt varð­stöðvum hermannsins. Þetta furðulega glæpaverk gerði hvítasunnu­hátíðina að sorgar­degi í Reykjavík og annarsstaðar, er fregnin spurðist. Drengurinn hét Jón Hinrik Benediktsson og átti heima aö Ingólfs­stræti 21 í Reykjavík. Hermaðurinn og yfirmenn hans voru óðar hand­teknir, en herstjórn og sendi­herra Banda­ríkjanna lýstu yfir harmi sínum yfir þessum atburði. Málið er enn ekki upplýst að fullu, en frekari upplýsingar hljóta að varða gefnar mjög bráðlega.

Frásagnir vitna

Í Morgun­blaðinu var fjallað ítarlega um málið en meðal þess sem fram kom þar voru frásagnir nokkurra vitna.

Ein frásögnin kemur frá leik­bróður Jóns, Guðmundi.

„Fyrir hádegi í dag hitti jeg leik­bróðir minn, Jón Hinrik Benediktsson. Hann ætlaði að kaupa sjer filmu í myndavjel og fór jeg með honum í Lyfja­búðirnar Ingólfs Apótek, Reykja­víkur Apótek og Lauga­vegsapótek, en hvergi var filmu að fá. Þegar við komum úr Laugavegs Apóteki gengum við suður Berg­staðastræti óg niður Hall­veigarstíg, framhjá herstöðinni, sem er þar norðanmegin götunnar. Við stoppuðum móts við hermann, sem stóð á verði á Hall­veigar­stígnum, móts við herbúðirnar. Svo kom hermaður og festi upp auglýsingu í varðmanns­skýlið. Við Jón fórum að skýlinu og lásum auglýsinguna. Svo gengum við niður með girðingunni, niður að Ingólfs­stræti. Jeg var með skamm­byssu, tálgaða úr trje. Jón kippti af mjer byssunni og henti henni yfir girðinguna inn á milli herbúð­anna. Jón stökk svo aftur upp á móts við varð­manninn og jeg sagði honum að ná í byssuna.

Um sama leyti tók hermaður byssuna og kastaði henni út fyrir girðinguna og greip hana þá lítill strákur, sem var þar fyrir utan. Jón hljóp inn um hliðið á girðingunni, framhjá varð­manninum. Varð­maðurinn kallaði þá til hans og, að mjer skildist, skipaði honum að koma út og hlýddi Jón því strax. Jeg var með dolk í slíðri, sem var fest í strenginn á buxunum mínum og tók jeg nú dolkinn og fór að kasta honum í ljósa­staur, sem stendur skamt frá stað þeim, sem varð­maðurinn stóð á og var jeg að reyna að láta oddinn stingast í staurinn. Jeg lánaði svo Jóni dolkinn og hann gerði það sama og jeg, kastaði honum í staurinn og reyndi að láta oddinn stingast í trjeð. Þar næst fór Jón upp í lítinn bíl, sem stóð við girðinguna, rjett hjá varð­manninum. Jón fiktaði við stýrið á bifreiðinni, en gerði ekki annað. Varð­maðurinn kom þá út úr skýlinu og kallaði til Jóns og fór Jón þá niður úr bílnum.

Þá vildi jeg fara heim, en Jón sagði að við skyldum bíða til kl. 12, því þá mundu hermennirnir gefa okkur epli, það væri hátíðisdagur hjá þeim í dag. Jeg var til með að bíða. Við stóðum svo þarna á götunni og töluðum eitthvað saman. Svo fór Jón aftur upp í sama bílinn og áður og fór þá að ,starta’ bílnum. Varð­maðurinn kom þá aftur út úr byrginu, gekk að bílnum og skipaði honum út úr bílnum, að því er mjer skildist. Jón hlýddi því strax og fór út úr bílnum. Jón fór svo upp að girðingunni bak við bílinn og jeg kom þangað til hans. Varð­maðurinn var með stóra byssu, jeg heyrði og sá að hann spenti byssuna upp. Þá var hann götumegin við bílinn. Svo gekk hann að Jóni og beindi byssu­hlaupinu að höfðinu á honum, svo reið skotið af, Jón fjell í götuna og jeg sá að blóð rann úr vitum hans. Varð­maðurinn gekk svo í burtu án þess að hreyfa neitt við Jóni, en jeg hljóp í burtu niður á Ingólfs­stræti og svo skemstu leið heim til mín.“

Gunnlaugur Magnússon skrifstofu­maður var eitt af vitnunum.

„Jeg bý á fyrstu hæð hússins Hall­veigarstíg 2, og er þar herbergi mitt austan megin við forstofu­innganginn og snýr herbergis­glugginn út að Hall­veigar­stígnum. Í morgun, þegar jeg var að klæða mig, varð mjer litið út um herbergis­gluggann og sá þá hermenn standa við endann á bifreið, sem stóð rjett fyrir vestan varðmanns­skýlið. Hermaðurinn beindi byssu að dreng, sem stóð þar fyrir framan hann upp við girðinguna. Á næsta augna­bliki heyrði jeg skothvell og drengurinn datt niður í götuna og lenti með höfuðið ofan í litlum vatns­polli, sem var þar á götunni á milli girðingarinnar og bílsins. Hermaðurinn gekk svo í burtu og inn í herbúðirnar, en nokkrir hermenn komu út í girðingar­hliðið og einn hermaður gekk að drengnum með teppi og breiddi yfir hann. Alveg rjett á eftir komu tveir hermenn með börur og báru drenginn inn í herbúðirnar. Jeg heyrði ekki nema einn skothvell.“

Sendi­herra Banda­ríkjanna á Íslandi á stríðs­árunum hét Lincoln MacVeagh en hann sendi yfir­lýsingu á alla helstu fjölmiðla landsins þar sem hann harmaði atburðinn.

„Það hefir fengið mjög á alla sanna Bandaríkja­menn við frjettirnar um hinn sorglega atburð. Við erum hjer á íslandi sem vinir íslands til að gera gott en ekki ilt og við óskum að hjálpa landinu á allan mögulegan hátt. Við lítum á það sem heiður fyrir okkur að dvelja hjer, og okkur er það sjerstakur harmur að við skulum vera valdir að sorg hjer á landi. Verið er að rannsaka þetta mál, en það er hægt að segja það strax, að það er sjerstaklega hræðilegt í augum Bandaríkja­manna sem elska börn, að drengurinn skuli hafa verið skotinn til bana. Hin harmi lostna fjöl­skylda og allir sorg­mæddir Islendingar mega vera vissir um, að óteljandi Bandaríkja­menn syrgja með þeim af heilum hug.“

Neitaði sök

Málið vakti skiljanlega mikinn óhug á Íslandi enda ekki á hverjum degi sem morð var framið á landinu, hvað þá á barni. Hermaðurinn sagði skotið hafa verið slysaskot en hann fór fyrir herrétt í Banda­ríkjunum. Alþýðu­blaðið sagði svo frá úrskurðinum í málinu:

Mál litla drengsins, Jóns Benedikts­sonar, sem skotinn var til bana af ameríkskum hermanni síðastliðinn hvíta­sunnudags­morgun: Hermaðurinn reyndist sjúkur af brjálsemi. Var hann sendur í geðveikrahæli í Banda­ríkjunum.

Baksýnis­spegill þessi birtist fyrst 7. janúar 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim