Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Bergman við Hrafn: „Hvernig eiga þeir sem geta ekki haldið við einu klósetti að reka kjarnorkuver?“

Hrafn fór með Bergmann í Bláa lónið á sínum tíma, því Bergmann var með exem – var hann afar ánægður með virkni vatnsins á exemið.
Hrafn fór með Bergmann í Bláa lónið á sínum tíma, því Bergmann var með exem – var hann afar ánægður með virkni vatns­ins á exemið.

Hrafn Gunnlaugsson er án efa eitt stærsta nafn íslenskrar kvik­myndasögu. Og án efa einn af umdeildari og mikil­vægari kvikmynda­gerðar­mönnum Íslands, og þótt víðar væri jafnvel leitað.

Myndir hans eru áleitnar og í þeim er að finna samfélags­lega gagnrýni – Óðal feðranna, árið 1981 – tilrauna­mennsku sem heppnaðist gífurlega vel í uppáhalds­kvikmynd þess sem heldur um pennann í þessari grein – Okkar á milli – í hita og þunga dagsins, árið 1982; mynd sem brýtur hressilega upp hið „samþykkta“ kvikmynda­form, sem var einfald­lega steingelt á Íslandi á þessum árum – gjör­samlega steingelt.

Stór­kost­legt lista­verk að öllu leyti þessi kvik­mynd.

Hrafn hristi upp í þessum gelda kvik­myndagerðar­heimi með auðugu ímyndunar­afli; frábærri tónlistar­notkun og mörgum stórkost­legum senum sem eru ekkert annað en listaverk.

Svonu litu alvöru töffarar út í den.

Hrafn er stór og mikill karakter sem hefur afrekað margt og mikið. Ekki bara sem leik­stjóri, heldur einnig sem dagskrár­stjóri RÚV, þar sem segja má að hann hafi komið RÚV út úr grárri forneskjunni og inn í nýja tíma. Ég man það vel þegar Hrafn tók við stjórninni á RÚV – allt í einu vorum við Duran Duaran-unglingarnir farnir að horfa á RÚV! Ungt fólk kom til starfa og drep­leiðinlegir þættir eins og Maður er nefndur og margir aðrir hryllilega leiðinlegir þættir luku keppni án nokkurra mótmæla.

Hrafn fékk marga stór­kost­lega lista­menn til að koma á Lista­há­tið. Hann fékk Leonard Cohen heit­inn hingað til lands.

Hrafn er þannig gerður að orðin hálfkák og meðal­mennska eru sem eitur í beinum hans; Hrafn vill annaðhvort allt eða ekkert, og hefur aldrei slegið af kröfum sínum; fyrir það hefur hann hlotið lof og last, eins og títt er um fólk sem er óhrætt að segja skoðanir sínar og að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd. Hikaði aldrei þegar þurfti að taka stórar ákvarðanir. Stór persónu­leiki í alla staði.

Hinn stór­kost­legi og skraut­legi leik­stjóri, John Waters, var gestur Hrafns á Lista­há­tíð. Fór vel á með þeim, enda báðir stórir og öðru­vísi karaka­terar..

Árið 1994 kom út alveg sérlega skemmtileg, fróðleg og athyglis­verð bók, eftir Árna Þórarinsson blaðamann til margra áratuga: Bókin er ævisaga Hrafns frá fæðingu og til þess tíma er hún leit dagsins ljós: Krummi – Hrafns saga Gunnlaugs­sonar. 

Sögurnar í bókinni eru sumar hverjar ævintýralegar, og hægt að skrifa nánast heilan sagnabálk um afrek Hrafns; en hann var mun virtari og vinsælli víða um heim en hér á Íslandi.

Frábær bók í alla staði. Til á flestum almenni­legum bóka­söfnum.

Og hann var elskaður í Svíþjóð – en þar sló mynd hans, Hrafninn flýgur, algjör­lega í gegn og gerði Hrafn að heims­frægum leik­stjóra, sem hann átti svo sannarlega skilið. Eftir árangurinn í Svíþjóð fóru Íslendingar loksins að meta Hrafn sem kvikmynda­gerðarmann og einnig sem stóran persónu­leika og skraut­legan; skemmtilegan mann sem hikaði aldrei; lét bara alltaf vaða.

Hrafn og ekkja Pablo Picasson, Jacqueline Roque, á Lista­há­tíð árið 1986. Jacqueline tók sitt eigið líf sama ár og þessi mynd var tekin.

Af mörgum skemmtilegum sögum úr bókinni, er sagan þegar Hrafni tókst að fá sjálfan Ingmar Bergman, einn merkasta kvikmynda­leikstjóra sögunnar, til Íslands, einna sérkennilegust. En frægt var hversu tregur og óviljugur Bergmann var að ferðast og koma fram opinber­lega; honum leiddist það.

Ein besta kvik­mynd Íslands­sög­unnar.

En þegar Hrafn hringdi þá var Bergman til í slaginn, enda hafði hann sem og öll Svíþjóð gjör­samlega heillast af kvik­myndinni Hrafninn flýgur sem kom út árið 1984. Stórkostleg mynd sem gerð var fyrir lítinn pening en hafði á sér yfirbrag stór­myndar; sem og hún sannarlega var og er. Íslenskur fornaldar-vestri í sérflokki.

Lista­hátíð hafði gert ítrekaðar tilraunir til að fá Ingmar Bergman til Íslands. Alltaf kom afsvar. Hann var hættur að ferðast (bls. 106).

En Hrafn var ekki á því að gefast upp, og hringdi heim til Bergmans, og eiginkona hans, Ingrid, svaraði í símann:

Ég sagðist heita Hrafn Gunnlaugsson. Og hvað hefur þú svo gert? spurði hún. Bíómyndir svaraði ég. Jæja, hvaða myndir? spurði hún. Hrafninn flýgur til dæmis, svaraði ég, enda var það eina myndin sem Svíar vissu einhver deili á. Er það virkilega? spurði hún þá, Ingmar hefur horft á hana oftar en einu sinni í einka­bíóinu sínu (bls. 106).

Og Bergman tók símann:

Heyrðu, ert þú þessi mikli sagna­maður? sagði Bergman og bætti við: Loksins hefur gamla norræna sagna­hefði verið endur­vakin og það í kvik­myndum. Ég hef ákveðið að þiggja boð þitt um að koma til Íslands (bls. 106).

Ingman Bergman kom því í heimsókn til Íslands, og að sjálfsögðu tók Hrafn á móti honum í flug­stöðinni gömlu, sem nú heitir Leifsstöð. Hrafn byrjaði á því að keyra með Bergman í Bláa lónið, sem þá var ekki sú okurbúlla og ferðamanna­gildra eins og raunin er í dag. En Bergman var með exem og Hrafn vildi sýna þeim sænska hversu mikla og góða virkni á húð og heilsu vatnið í Bláa lóninu er. Var Bergman ánægður og sagði vatnið hafa haft góð áhrif á exemið.

Tveir góðir; umdeildir og upp­á­tækja­samir: Hrafn og Erró.

Já, Bergman kom því sem gestur Lista­hátíðar árið 1986. Hrafni fannst Bergman sérstakur karakter. Hrafn bjóst við miklum samræðum um gildi kvik­myndagerðar fyrir samfélagið og annað í þeim dúr – tengt kvik­myndagerð. En, ónei, svo var ekki. Bergman vildi frekar ræða um þarfir sem allar manneskjur hafa – þörfin að kúka, og hann pældi mikið í kúk, sem kom Hrafni í opna skjöldu:

Hann fór inn á salernið og sturtaði niður. Heyrðu, sagði hann, vatnið snýst í skálinni. Ég vil ekki nota svoleiðis klósett. Ég vil ekki að kúkurinn snúist í hringi. Ég vil að hann fari beint niður. Alltaf þegar ég er búinn á klósettinu stend ég upp, virði fyrir mér kúkinn og horfi á hann hverfa og ég vil ekki sjá hann tætast í sundur í svona hringiðu (bls. 108).

Hinn dáði sænski og heims­frægi leik­stjóri, Ingmar Bergman, pældi mikið í kúknum sínum. Og Hrafn var eiginlega stúmm:

Ég hafði hlakkað til að hitta þennan mikla snilling og andans mann, sem ég hafði alltaf dáð úr fjarlægð, fá tækifæri til að tala við hann og nema visdómsorð af vörum hans, en svo talaði hann um kúk! Hann fór að segja mér ýmsar sögur um reynslu sína af ólíkum klósettum. Til dæmis væri engin furða að Tsjernobyl kjarnorku­verið hefði bilað því ekki væri til eitt einasta klósett í Rússlandi sem virkaði. Hvernig eiga þeir menn sem geta ekki haldið við einu klósetti að reka heilt kjarnorkuver? spurði hann (bls. 107).

Ein af þekkt­ari perlum sem Ingmar Bergmann gerði – kvik­myndin Persona frá árinu 1966.

Já, þarna fékk Hrafn ekki mikið upp úr Bergman varðandi kvik­myndagerð – en fékk nánast heila B.A. ritgerð um kúkinn sinn, sem og þau klósett sem hann hafði prófað á ferða­lögum sínum í gegnum tíðina.

En sem betur fer fyrir Hrafn, hitti hann Bergman nokkrum sinnum eftir að heimsókn hans til Íslands, og þá gaf Bergman Hrafni nokkur góð ráð sem nýttust honum vel síðar á ferlinum. En minntist þá ekkert á kúk.

Lýkur þar með frásögninni af því þegar Ingmar Bergman hafði engan áhuga á að tala við Hrafn Gunnlaugsson um kvik­myndagerð en vildi bara tala um kúkinn sinn.

Endir.

Heimild: Krummi – Hrafns saga Gunnlaugs­sonar. Árni Þórarinsson. Fróði hf. 1994.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim