Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Bæjarfulltrúi vandar fyrrum formanni ekki kveðjurnar: „Ógeðfelld viðhorf“

Hildur er sátt með að Helga Dögg sé ekki lengur formaður en hún vinnur í Síðuskóla
Hildur er sátt með að Helga Dögg sé ekki lengur for­maður en hún vinnur í Síðu­skóla

Bæjar­fulltrúi á Akureyri gleðst yfir formanns­skiptum hjá Bandalagi kennara á Norður­landi eystra.

Hildur Jana Gísla­dóttir, bæjar­fulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri, gleðst yfir samstöðu Akureyringa með Samtökunum 78 í kjölfar fals­frétta og upplýsinga­óreiðu sem reynt var að skapa í kringum samtökin í september.

„Í gærkvöldi bauð félag foreldra­félaga grunn­skóla á Akureyri til fræðslu og fundar með fulltrúum Samtak­anna 78 til að fræðast um það efni sem þau kenna grunn­skólabörnum í sveitar­félaginu í vetur. Fundurinn var fjölmennur og vægast sagt góður. Fyrirfram voru örugglega einhver með hnút í maganum enda hafa bæði ýmsum röngum og misvísandi upplýsingum verið dreift um fræðslu samtak­anna og það stundum líklega í þeim tilgangi að valda skaða,“ sagði bæjar­fulltrúinn í pistli sem birtist á Akureyri.net.

„Það hefur síðan óneitanlega haft áhrif að formaður Bandalags kennara á Norður­landi eystra (BKNE) hefur nánast daglega, opinber­lega, viðrað ógeðfelld viðhorf sín og annarra um málefni hinsegin fólks, sem hafa sérstak­lega beinst gegn trans­fólki. Þau gleðilegu tíðindi bárust hins vegar í gær að formann­skipti hafa orðið hjá félaginu. Á þingi kennaranna var samþykkt laga­breyting sem fólst í því að framvegis skuli kjósa formann til eins árs í senn og tók breytingin gildi strax á þinginu.“

Kosið var strax og skipt um formann en formaðurinn fyrr­verandi heitir Helga Dögg Sverris­dóttir og hefur hún verið mjög áberandi í umræðu um trans fólk undan­farin ár og hefur hún verið sökuð um hatur í garð trans fólks.

„Það var ekki síður ánægjulegt að finna kraftinn í foreldrum á svæðinu á fræðslu­fundinum í gærkvöldi, sem ef eitthvað er vildu frekar gera meira og betur á Akureyri í því skyni að fagna fjöl­breyti­leikanum og skapa litskrúðugt og öruggt samfélag fyrir okkur öll. Ef marka má þann anda sem var á þessum fjölmenna fundi þá mun okkar samfélag sem betur fer ekki sætta sig við bakslag í réttinda­baráttu hinsegin fólks, heldur sporna við þróuninni af fullum krafti,“ sagði Hildur að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.
Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp