Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Hnífstungan á Hólmsheiði: Nálgaðist fórnarlambið í gegnum fund á vegum AA samtakanna

Myndin er samsett og unnin samskvæmt lýsingu eggvopnsins
Myndin er sam­sett og unnin sam­skvæmt lýs­ingu egg­vopns­ins

Á mánudags­kvöldið greindi Mannlíf fyrstir fjölmiðla frá því að hnífstungu­árás hafi átt sér stað í fangelsinu á Hólms­heiði. Þá var sagt að karlmaður tengdur Banka­strætis­árásinni hafði verið stunginn í andlitið en náð að sparka af sér árásar­manninum; fór hnífs­stungan í andlit mannsins rétt ofan við augabrún hans og þótti mikil mildi að ekki fór verr – en litlu mátti muna að stungan lenti í auga hans.

Heimildar­maður Mannlífs sagði að ráðist hafi verið á fangann inni á gangi í fangelsinu og að svo virðist sem árásin hafi verið þaul­skipulögð. Árásar­maðurinn var á öðrum gangi en hljóp yfir á gang fórnar­lambsins – og það á ekki að geta gerst. Samkvæmt heimildum frétta­stofu Vísis hefur komið í ljós að árásar­maðurinn sem vistaður er á öðrum gangi en fórnar­lambið hafi náð að nálgast fórnar­lambið í gegnum AA – fund sem haldinn var á gangi fórnar­lambsins.

Afplánar árásar­maðurinn þungan dóm. Er honum gert að hafa útbúið eggvopn úr gaffli. Tennur gaffalsins ku hafa verið fjar­lægðar að unda­skilinni einni sem hafði verið brýnd.

Samkvæmt heimildum Mannlífs er árásar­maðurinn karlmaður um tvítugt sem þegið hefur greiðslu til að veitast að fórnar­lambinu. Haft er eftir heimildum að árásar­maðurinn sé þekktur í undir­heimunum og að hann hafi vísvitandi skotið ungan karlmann til að komast inn í fangelsið, hafandi verið nýbúinn að afplána aðra fangelsis­vist.

Heimildamönnum greinir á

Eins og áður hefur verið nefnt tjáir heimilda­maður Mannlífs að greiðsla hafi verið lögð fram fyrir verknaðinn. Ber því sögum ekki saman því samkvæmt heimilda­manni Vísis flokkast árásin sem tækifæris­árás þar sem fórnar­lambið var ekki sjálft statt á fundinum. Þó má draga líkur að því að einhver skipulagning hafi átt sér stað þar sem fram kemur að árásar­maðurinn hafi ekki ætlað sér að drepa fórnar­lambið heldur einungis að hræða það.

Í samtali við Mannlíf síðastliðinn þriðjudag segir Páll Winkel fangelsis­mála­stjóri:

„Þá er ráðist þarna að samfanga fyrirvara­laust með heima­gerðu eggvopni og sem betur fer urðu afleiðingar ekki miklar en eins og ég segi við lítum þetta mjög alvarlegum augum og förum yfir alla verkferla hjá okkur hvort það sé eitthvað sem við getum bætt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim