Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

„Íslendingar tilbúnir fyrir eitthvað hrekkjavökutengt“

Greta Salóme, söngkona og fiðlu­leikari, heldur nú, þriðja árið í röð, rokk­tónleika­sýninguna Halloween Horror Show í samstarfi við Forte ehf. Fjöldi annarra þekktra flytjenda kemur fram ásamt Gretu og er sýningin frábær fyrir unnendur hrekkja­vökunnar, búninga og rokksöngs.

Greta Salóme í hrekkjavökugervi.||||
Greta Salóme í hrekkja­vöku­gervi.||||

„Sýningin hefur slegið í gegn síðustu tvö ár og greinilegt að Íslendingar voru tilbúnir fyrir eitthvað Halloween-tengt. Við erum líka með fleira en bara rokk og sem dæmi tökum við lög úr Rocky Horror og Litlu hryllings­búðinni í klikkuðum búningi,“ segir Greta Salóme sem hefur yfir­umsjón með sýningunni, auk þess að leikstýra henni og koma fram sjálf. Það er framleiðslu­fyrirtækið Forte ehf. sem stendur að sýningunni.

„Ég er með ótrúlega gott fólk með mér og á öllum vígstöðvum sem hefur hjálpað mér mikið með þessa klikkuðu hugmynd. Þar er systir mín fremst í flokki sem og fyrir­tækið Swipe sem hafa unnið ótrúlega gott starf í þessu með mér,“ segir Greta.

Greta stendur þó ekki ein á sviðinu því með henni er valinn hópur lista­manna. „Flytjendurnir í ár eru alveg trylltir í þetta „concept“ eins og ég. Við deilum nátt­úrlega öll tónlistar­áhuganum en við veljum hvaða lag hentar hverjum og svo er farið í að finna útlit fyrir hvert lag þannig að allir flytjendurnir koma fram í mismun­andi búningum og gervum,“ segir Greta. Flytjendurnir eru ásamt Gretu, Stebbi Jak, Andrea Gylfa, Svala, Magni, Dagur Sig, Ólafur Egill, Camilla Rut, auk bakradda, dansara, leikara og hljóm­sveitar.

Mynd / Aðsend

„Með allt of lítið hjarta fyrir hryllingsmyndir“

„Ég bjó í Banda­ríkjunum þegar ég var að læra og elska Halloween-hátíðina. Svo eftir að ég setti upp sýninguna mína hjá Disney sá ég hvernig þeir tvinnuðu saman tónlist, tónleikum og Halloween og fannst skemmtilegt að taka það enn þá lengra og fara í þessa rokk­tónleika­sýningu sem Halloween Horror show er. Ég hef alltaf verið mikil leikhús­manneskja og þarna sameinast leikhús- og framleiðslu­áhuginn og svo tónlistin,“ segir Greta. „Ég er með allt of lítið hjarta fyrir hryllings­myndir en það eru alveg nokkrar sem standa upp úr. Ég man eftir að hafa séð myndina Signs þegar ég var svona 17 ára og ég held að ég hafi ekki sofið heila nótt síðan.“

Mynd / Aðsend

Háskólabíó verður að allt öðrum heimi

Á sýningunni er öllu tjaldað til þegar kemur að búningum og segir Greta það í rauninni þess virði að koma bara til að sjá búningana. „Það sem er eiginlega geggjaðast við þessa sýningu er samt anddyrið. Það verður búið að skreyta það allt og alls konar verur á sveimi og fólk hefur haft orð á því hvað það hefur verið hissa á hvað það gekk inn í allt annan heim þegar það kom inn í anddyrið,“ segir Greta og bætir við að stemningin á tónleikunum hafi verið ólýsanleg.

„Magnað að sjá hvað margir hafa mætt í búningi og tekið þetta alla leið.“

„Fólk er svo tilbúið í þetta og hefur staðið stundum heilu sýningarnar í fílíng og sungið með lögunum. Það hefur líka verið magnað að sjá hvað margir hafa mætt í búningi og tekið þetta alla leið. En svo er auðvitað ekkert að því heldur að láta hina um búningana og koma bara og njóta. Við höfum fengið mjög margar fyrir­spurnir í sambandi við börn og hvort þau megi koma. Við segjum alltaf það sama, að það sé algjör­lega foreldra að meta það. Seinni sýningin er klukkan 23 þannig að það er kannski aðeins of seint fyrir lítil hjörtu.“

Mynd / Aðsend

Tvær sýningar verða haldnar laugar­daginn 26. október. „Það seldist hratt upp á sýninguna þannig að við höfum bætt við auka­sýningu sama kvöld sem verður enn þá hryllilegri.“

Miðasala fer fram á tix.is.

Greta er núna stödd í Amsterdam á tónleika­ferðalagi. „Ég var með tvenna stóra tónleika í Linda­kirkju á laugar­daginn og á fullu fyrir það og svo beint upp í vél og út að spila. Svona eru dagarnir mínir einhvern veginn allir og ég bíð alltaf eftir að það komi rólegur tími sem kemur svo aldrei. Ég verð með stór verkefni heima núna í nóvember og svo með mína eigin jóla­tónleika ásamt Daða Frey í Hlégarði og Akureyrar­kirkju í desember auk þess að vera gestur hér og þar á öðrum jóla­tónleikum,“ segir Greta aðspurð um hvað tekur við eftir sýninguna. „Ég flýg síðan út til Banda­ríkjanna rétt fyrir jól í samstarfs­verkefni með American Ballet Theater og verð að syngja og spila þar yfir jólin. Þannig að það er bara meira en nóg fram undan.“

Mynd / Aðsend
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto