Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

„Vitskert veröld sem við búum í“ – Staðan versnar bara og versnar

Ragnar Þór Ingólfsson er formaður VR
Ragnar Þór Ing­ólfs­son er for­maður VR

„Þetta er vitskert veröld sem við búum í,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR á facebook síðu sinni í morgun. Þar vekur hann athygli á því að leiguverð sé orðið hærra en lágmarks­laun.

Þar vísar hann í neðan­greinda auglýsingu sem tekin af fasteignavef mbl.is. Þar er boðið upp á 3 herbergja íbúð til leigu á 375.000 kr. á mánuði, sem er töluvert yfir lægstu launa­töxtum, sem voru fyrir skatt rúmar 367.000 kr., fyrir hækkanir síðustu kjara­samninga.

Bjarg Íbúða­félag er með sambærilega íbúð til leigu við Tanga­bryggju á 166.475 kr. og frá því dragast húsaleigu­bætur.

Hér má sjá færslu Ragnars í heild sinni:

Staðan á húsnæðis­markaði. Meðfylgjandi mynd er tekin af fasteignavef mbl.is. Þar er boðið upp á 3 herbergja íbúð til leigu á 375.000 kr. á mánuði, sem er töluvert yfir lægstu launa­töxtum, sem voru fyrir skatt rúmar 367.000 kr., fyrir hækkanir síðustu kjara­samninga.Bjarg Íbúða­félag er með sambærilega íbúð til leigu við Tanga­bryggju á 166.475 kr. og frá því dragast húsaleigu­bætur.Leigu­félagið Alma hefur borið fyrir sig markaðinn þegar tugþúsunda hækkunum, umfram vísitölu, er hellt yfir viðskipta­vini þeirra með reglulegu millibili og er viðbúið að þetta nýja viðmið markaðarins á Tanga­bryggju verði notað við næstu 12 mánaða endur­skoðun þeirra þegar viðskipta­vinir þeirra fá “boð” um endurnýjun á leigu­samningi.Við hjá Bjargi vorum að skila af okkur dýrustu blokk sem við höfum byggt en blokkin stendur við Maríugötu í Garðabæ. Ein af ástæðum þess að hún var dýrari í framkvæmd var að lofthæð þurfti að vera meiri, en svo spila aðrir þættir þar inn líka eins og hærri fjármagns­kostnaður og hærri byggingar­kostnaður. Það þýðir að leigu­verðið á 3 herbergja íbúð við Maríugötu er það hæsta sem við höfum þurft að setja á slíka íbúð í sögu Bjargs eða 190.000 kr. á mánuði.Við erum með þing­lýstan leigu­samning frá blokkinni við hliðina en þar fór íbúð í leigu á 320.000 kr. fyrir hálfu ári síðan.Við hjá Bjargi stefnum að því að vera komin með um 1.000 íbúðir á þessu ári, og það á aðeins 5 árum, en allar framkvæmdir hafa verið á kostnaðar og tíma­áætlun sem er líklega einsdæmi í byggingar­sögu Íslands.Einnig munum við hefja framkvæmdir við fyrsta verkefni Blævar í þessum mánuði en það eru íbúðir sem VR fjár­magnar og verða í boði fyrir félags­fólk VR. Verkefnið er sérstak­lega sniðið fyrir fjár­festingar lífeyris­sjóða.Árum saman hefur stefnt í eina alvarlegustu húsnæðis­kreppu síðari ára.Árum saman höfum við reynt að koma á leigu­bremsu.Árum saman höfum við bent á að helsti drif­kraftur verðbólgu er framboðs­skortur á húsnæði.Árum saman höfum við reynt að fá lífeyris­sjóði til að fjárfesta í uppbyggingu á húsnæðis­markaði.Árum saman höfum við reynt að koma stjórn­völdum í skilning um þessa stöðu en einungis fengið starfshóp eftir starfshóp og nefnd eftir nefnd en engar aðgerðir eða efndir.Staðan í dag er að húsnæðis­markaðurinn er botn frosinn. Framkvæmdir dragast saman og stefnir í algjört óefni. Hátt vaxtastig og aðgerðir Seðla­bankans hafa þannig lokað á eftir­spurnar­hliðina, og framboðs­hliðin er að lokast líka.Í meðan hefur ríkis­stjórnin mestar áhyggjur af stöðunni á vinnu­markaði og hvernig helst sé hægt að beisla hann með lögum. Og hvernig kjara­samningar, en þar hækkuðu laun um 35.000 til 66.000 kr. á mánuði, séu nú helsta ógnin við stöðug­leika.Þetta er það eina sem þau hafa til málanna að leggja á meðan þinfararkaupið, sem er Kr. 1.345.582.- og hefur hækkað um 582.642 í krónum talið frá árinu 2016, mun að öllum líkindum hækka um að lágmarki 115.000 kr. við næstu endur­skoðun í júlí ef við áætlum hver 12 mánaða launa­vísitala verði þá.Fjármála­ráðherra telur okkur aldrei hafa haft það betra á meðan bankarnir öskra eftir enn hærri vöxtum svo þeir geti gengið á eigið fé almennings sem myndast hefur í húsnæðum þeirra.Staðan versnar bara og versnar.Þetta er vitskert veröld sem við búum í.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim