Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Dökkir Íslendingar tjá ótta eftir sigur hægriflokkanna

„Ég er blandaður, brúnn hommi og mér finnst ég ekki alveg 100% öruggur“

Friðrik Agni Árnason
Friðrik Agni Árnason Friðrik er ugg­andi yfir úrslitum kosn­ing­anna Mynd: Aðsend

Ingólfur Shahin, forstjóri Travelshift, og Friðrik Agni Árnason, dansari og verkefna­stjóri hjá UNICEF, segjast báðir ótta­slegnir eftir niður­stöður sveitar­stjórnar­kosninganna um helgina, þar sem Sjálfstæðis­flokkurinn og Miðflokkurinn bættu víða við sig fylgi.

Í ítarlegri Facebook-færslu segir Ingólfur að niður­stöðurnar vekji með sér ótta sem einstaklingi með blandaðan bakgrunn.

„Ótti, þannig myndi ég lýsa niður­stöðum þessara kosninga fyrir Íslendinga með blandaðan bakgrunn. Það er skelfilegt að sjá nær helming borgarbúa kjósa flokka sem hafa lýst yfir kynþátta­hatri og ítrekað farið með fleipur um heil menningar­samfélög í þeim tilgangi einum að hræða fólk til að kjósa sig,“ skrifar hann.

Hann segir sérstak­lega sárt að sjá fólk úr eigin vinahópi og fjöl­skyldu styðja flokka sem hann telur hafa gert útlendinga­andúð og stuðning við Ísrael að hluta af stefnu sinni.

„Til þeirra sem segjast styðja þessa flokka nema þegar kemur að útlendinga­andúð og stuðningi þeirra við Ísrael, þá segi ég þetta: kynþátta­hatur og þjóðar­morð geta aldrei verið ‘auka­atriði’,“ skrifar Ingólfur og bætir við að „þegar samfélag byrjar að umbuna slíku hatri með atkvæðum, þá er hættan ekki lengur framtíðar­sviðsmynd, heldur er hún þegar byrjuð.“

Þá gagnrýnir hann einnig Hildur Björns­dóttir, sem líkleg er til að verða næsti borgar­stjóri Reykja­víkur.

„Vissulega er Hildur Björns­dóttir, tilvon­andi borgar­stjóri, fram­bærileg og að mörgu leyti glæsileg. Hún hefði samt getað komið fram eftir að ljóst varð að hún yrði borgar­stjóri og sagst ætla að vera leiðtogi fyrir alla Reyk­víkinga, sama hvaða uppruna eða kynhneigð fólk hefði,“ skrifar hann.

Ingólfur segir jafnframt að hann hugsi þessa dagana um að vera reiðu­búinn að yfirgefa landið með börnum sínum ef samfélagið þróist áfram í þessa átt.

„Því sagan byrjar aldrei með fanga­búðum eða ofsóknum … hún byrjar með afmennskun,“ skrifar hann.

Hinsegin og brúnn

Í sambærilegum tón skrifar Friðrik Agni að hann finni fyrir óöryggi í eigin heima­landi eftir þróun síðustu missera í samfélags­umræðunni.

„Já ég er ótta­sleginn. Ég er blandaður, brúnn hommi og mér finnst ég ekki alveg 100% öruggur, hér, heima í mínu uppruna­landi,“ skrifar hann.

Hann segir orðræðuna í samfélaginu hafa stuðlað að afmennskun fólks sem falli ekki að hefð­bundnum hugmyndum um það hvernig Íslend­ingur eigi að vera.

„Kosningarnar sanna það að þessi ótti er ekki ástæðu­laus. Og það er ekki einungis hvernig maður hefur lesið í kommenta­kerfi landsins heldur er þetta tilfinningin á götunni. Augnaráð og framkoma,“ skrifar Friðrik.

Þá segir hann að þróunin sé ekki bundin við Ísland heldur sjáist víða um heim.

„Það hvarflar stundum að manni að færa sig um set en málið er bara að þetta er staðan í heiminum. Þannig maður spyr sig. Þurfum við bara að berjast harðar fyrir okkur sjálf, hafa hærra?“ skrifar hann að lokum.

Óheppilegt orðalag

Í athugasemd við færslu sína bætir Friðrik Agni því við að hann sé meira að tala um Miðflokkinn en Sjálfstæðis­flokkinn og að hann telji Hildi Björns­dóttur ekki vera rasista.

„Og P.S. ég er kannski meira að snúa mér að málefnum MF heldur Sjálf­stæðis og ég tel nú alls ekki að hún Hildur Björns­dóttir sé rasisti. Bara svo það sé sagt. Þetta súkkulaði­kleinu orðalag er samt afar óheppilegt yfir höfuð og kannski bara hægt að viðurkenna það - sérstak­lega í þessu samhengi og í því pólitíska umhverfi sem við búum í.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

„Það er allt of oft rætt um málefni þessa hóps án þess að rætt sé við fólkið sjálft“
  • Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

  • Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

  • „Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“

  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaupunum

  • „Af tvennu illu er skárra að böðullinn sé ekki í felulitum frjáls­lyndis“