Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Jóhanna Vigdís greip ráðherra sem féll í yfirlið í beinni útsendingu: „Ég er ekkert heljarmenni“

Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir fréttamaður RÚV. Myndi/skjáskot RÚV
Jóhanna Vigdís Hjalta­dóttir frétta­maður RÚV. Myndi/skjá­skot RÚV

„Ég er ekkert heljarmenni en ég greip ráðherrann og kom þannig í veg fyrir að Ingibjörg félli í gólfið,“ sagði Jóhanna Vigdís Hjalta­dóttir, frétta­maður Ríkis­sjón­varpsins, í samtali við DV árið 2001.

Var það þann 17.janúar 2001 þegar Ingibjörg Pálma­dóttir, fyrrum heilbrigðis­ráðherra, féll í yfirlið í beinni sjónvarps­útsendingu frá Alþingi.

Jóhanna Vigdís hafði fengið Ingibjörgu og Össur Skarp­héðinsson í viðtal. Ingibjörg var vart búin að segja nema nokkur orð þegar hún féll fram yfir sig. Í frétt DV segir að ráðherrann hafi verið „afmyndaður af kvölum í andliti og rjúfa þurfti beina frétta­útsendingu.‘‘

Jóhönnu Vigdísi var eðlilega brugðið og sagðist alls ekki hafa átt von á þessu.

„Ingibjörg var fljót að ná sér og var til í að halda viðtalinu áfram. Þá stóð hún sig líka vel,“ sagði Jóhanna Vigdís sem sjálf var enn að jafna sig þegar viðtalið var tekið við hana, morguninn eftir uppákomuna.

Össur Skarp­héð­ins­son

Össur Skarp­héðinsson, formaður Samfylkingarinnar, stóð við hlið Ingibjargar þegar leið yfir hana. Honum var einnig brugðið en sagðist sem betur fer hafa heyrt að líðan ráðherrans væri góð. Vildi hann að öðru leyti ekki tjá sig um málið.

Þetta kvöld var það ótrúleg tilviljun að Sveinn Magnússon, læknir og starfs­maður heilbrigðis­ráðuneytisins, var staddur nærri Alþingis­húsinu. Hann var akandi á leiðinni heim til sín með útvarpið í gangi og heyrði því hvað gekk á á Alþingi. Sveinn var ekki lengi að snara sér út úr bílnum og hlaupa niður í Alþingishús þar sem hann hlúði að ráðherranum.

Eftir að Jóhanna hafði lokið viðtalinu við Ingibjörgu fylgdi Sveinn henni niður á spítala þar sem hún gekkst undir skoðun.

Ísólfur Gylfi Pálmason.

Ísólfur Gylfi Pálmason, fyrrum alþingis­maður og bróðir Ingibjargar, sagði í viðtali við DV að systur sinni liði vel og ætti að hvíla sig fram yfir helgina – Skýringin var þreyta.

„Mér skilst að héma sé um ógurlega ofþreytu að ræða sem braust svona fram. En það er harka í genunum hjá okkur og það skýrir hvers vegna systir mín treysti sér til að ljúka sjónvarps­viðtalinu þrátt fyrir að hafa fallið í yfirlið,“ sagði Ísólfur og bætti við að systir sín væri energísk og gleymdi stundum að borða þegar mikið er að gera.

Heimild: Tímarit.is DV

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim