Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Guðrún var misnotuð sem barn og fékk magasár 10 ára: „Læknarnir greindu mig ímyndunarveika“

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann Mynd: Aðsend

Guðrún Bergmann er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggva­sonar. Guðrún, sem hefur lengi starfað við heilsu, glímdi sjálf við mikið heilsu­leysi:

„Ég var alltaf sjálf að leita og læknarnir voru búnir að greina mig með ímyndunar­veiki út af öllum einkennunum. Ég var búin að horfa á fólk í kringum mig taka mikið af lyfjum og vissi að það væri ekki mín leið. En einkennin voru mjög þrálát og ég var til dæmis alltaf með sýkingar í kinn-og ennis­holum og meltingin í ólagi. Það var ekki fyrr en síðar að ég gerði þá tengingu að misnotkun sem ég varð fyrir sem barn hafi spilað inn í. Ég sé núna að það bjó til mikinn kvíða og setti líkamann úr jafnvægi. Ég fékk magasár þegar ég var bara 10 ára gömul, sem þótti með eindæmum og eftir það átti ég í miklu basli með meltinguna í mörg ár. Ég var að basla við alls konar vandamál í tauga­kerfinu og líkamanum í fleiri fleiri ár.“

Guðrún rifjar í þættinum upp áhuga­verða tíma á ferli sínum:

Guðrún hefur um árabil haldið alls kyns námskeið og lauk nýlega námskeiði númer 80 í hreinu fæði og hreinsun á líkamanum

„Það er alltaf jafngaman að sjá hvað fólk finnur miklar breytingar á þeim 3 vikum sem það hreinsar fæðið. Eftir þessar vikur hefur fólk svo tækifæri á að velja upp á nýtt, þar sem kerfið er búið að hreinsa sig. Við lifum á tímum þar sem hefur aldrei verið meira af aukaefnum í mat og flestir eru í streitu, þannig að það er nauðsynlegt að gefa líkamanum tækifæri á að laga sig reglulega.“

Guðrún hefur verið óhrædd við að viðra skoðanir sem ganga gegn megin­straumnum á köflum og hún segir að það hafi aldrei verið mikil­vægara en nú að fólk hlusti á innsæi sitt.

„Það eru mjög órólegir tímar í heiminum og stjórn­völd eru að grípa inn í líf fólks á mjög mörgum sviðum, meðal annars varðandi heilsu í Covid-tíma­bilinu og hver og einn verður að reyna að finna innra með sér hvað er rétt og hvað ekki. Í mínum huga er það orðið mjög sérstakt að ein stofnun (Alþjóða­heilbrigðis­stofnunin) sé komin með hálfgert alræðis­vald yfir alls kyns hlutum,“ segir Guðrún

„Fyrir tveimur árum voru allir sem töluðu um það sem er að gerast í Davos og hjá World Economic Forum kallaðir samsæris­fólk, en nú er mjög margt af þessu orðið opinbert og liggur beinlínis fyrir. Það er verið að ljóstra upp hlutum sem hafa verið í felum lengi og nú er ekki lengur hægt að loka bara augunum. Við höfum svolítið verið stödd í Truman-Show og svo einn góðan veðurdag opnum við augun og sjáum hvað er að gerast.“

Guðrún segist sjálf hafa orðið fyrir því að viðtöl við hana hafi ekki verið birt af því að hún sé að tjá hluti sem ekki eigi upp á pall­borðið:

„Ég fór til dæmis í viðtal hjá Ásdísi Ólsen, sem var tekið í mars á síðasta ári og átti að fara í loftið 11. apríl. Hún sendi mér klippur úr þættinum og allt í góðu með hljóð og mynd. En svo allt í einu segir hún mér að hljóðið hafi verið ónýtt í öllum hlutum viðtalsins. Og mér var ekki boðið að endurtaka viðtalið. Svo hafa fréttir úr þáttum þar sem ég hef tjáð mig verið teknar úr loftinu nokkrum klukku­tímum eftir að þær voru settar inn.“

Guðrún segist löngu komin á stað þar sem hún verður að vera samkvæm sinni eigin sannfæringu og er sannfærð um það margt í tilverunni sé öðruvísi en virðist við fyrstu sýn:

„Við erum andleg vera í efnis­legum líkama. Það er andinn sem fer þegar fólk deyr, ekki líkaminn. Hann verður eftir. Þetta sá ég þegar maðurinn minn dó. Hann dó heima og hálftíma eftir að hann var dáinn sá ég að andinn var farinn. Hann leit út eins og Gulli, en var ekki Gulli. Andinn var farinn úr skrokknum. Andinn var það sem bjó til allt í þessum líkama, enda talaði hann sjálfur um að hann væri ekki þetta farartæki sem hann var í, heldur andi. Ég fæ gæsahúð þegar ég tala um þetta.“

Hægt er að nálgast viðtalið við Guðrúnu og öll viðtöl og podcöst Sölva Tryggva­sonar inni á solvitryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum