Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

„Kannski gerðist þetta fullhratt og menn voru ekki búnir að hnýta alla lausa en við björgum því“

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Bene­dikts­son.

Eftir að erindi barst frá N4 á Akureyri til Meirihluta fjár­laganefndar Alþingis, ákvað nefndin að hækka styrk­veitingar til einka­rekinna fjölmiðla sem nemur 100 milljónum króna.

Fram kemur á ruv.is að í tillögu sem meirihlutinn sendi frá sér síðastliðinn miðvikudag, er tekið fram sérstak­lega að hækkunin sé vegna reksturs fjölmiðla á lands­byggðinni; sem framleiða eigið efni fyrir sjónvarpsstöð – en N4 er eina sjónvarps­stöðin á lands­byggðinni.

Þingmaður Framsóknar­flokksins, Stefán Vagn Stef­ánsson, á sæti í fjár­laganefnd – en mágkona hans er framkvæmda­stjóri N4.

Segist Stefán ekki hafa tekið þátt í umfjöllun nefndarinnar um styrkinn.

Umræða var um tillöguna á Alþingi í morgun; Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, sagði tillöguna ekkert annað en hneykslanlega; flokks­bróðir hennar, Sigmar Guðmundsson, nefndi að Víkur­fréttir í Reykja­nesbæ gætu líka fallið undir skilgreiningu fjár­laganefndar.

RÚV náði tali af Bjarna Benedikts­syni fjármála­ráðherra og formanni Sjálfstæðis­flokksins eftir ríkis­stjórnar­fund í morgun:

„Ég held að mönnum hafi gengið gott til með því að koma til móts við erfiða stöðu einka­rekinna fjölmiðla. Ríkis­útvarpið er að fá verulega uppbót í fjár­lögunum. Það eru yfir 300 milljónir sem fara í gegnum lögboðið útvarps­gjald frá heimilunum til Ríkis­útvarpsins og mér finnst ekkert skrýtið að þingið sé á sama tíma að velta fyrir sér stöðu einka­rekinna miðla. Kannski gerðist þetta fullhratt og menn voru ekki búnir að hnýta alla lausa en við bara björgum því,“ sagði Bjarni og bætti við aðspurður að ekki hafi verið um að ræða vanhæfni:

„Ég sé það ekki. Ég held að umræðan almennt um vanhæfi þingmanna sé á ákveðnum villigötum. Þingmenn eru ekki að taka stjórnsýslu­ákvarðanir eins og umræðan um vanhæfi almennt snýst um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis