Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Katrín Jakobs gifti sig í skyndi: „Brúðkaupsnóttin fór í að hjálpa gubbandi barni“

Katrín Jakobsdóttir,
Katrín Jak­obs­dóttir, Mynd: Róbert Reynisson

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra Íslands fagnaði brúðkaups­afmæli sínu í gær en þau Gunnar Sigvaldason hafa verið gift í 15 ár. Þau fögnuðu þó í sitthvoru landinu í ár.

Katrín skrifaði færslu á Facebook í gær þar sem hún segir frá brúðkaups­afmælis þeirra hjóna. Hún rifjar upp þegar þau ákváðu í skyndi að gifta sig árið 2007 en því héldu þau leyndu fyrir flestum. Segir hún að brúðkaups­nóttin hafi ekki verið eins skemmtileg og þær oft eru:

„Í dag höfum við Gunnar verið gift í fimmtán ár. Við fögnum þessu brúðkaups­afmæli hvort í sínu landinu þar sem ég sit í dag leiðtoga­fund JEF-samstarfsins í Riga en hann er heima á Íslandi.

Við giftum okkur nokkuð skyndi­lega árið 2007 og sögðum örfáum frá þeirri àkvörðun, ég var þá komin á steypirinn og sonur 2 kom í heiminn á gamlársdag sama ár. Við giftum okkur hjá Sýslu­manni og fórum svo með elsta syninum á Hornið og Ísbúð Vestur­bæjar. Við komumst að því þetta kvöld að líklega væri barnið með mjólkur­ofnæmi þar sem brúðkaups­nóttin fór i að hjálpa gubbandi tveggja ára barni sem hafði fengið sér ótæpilega af ís.“

Þá segir Katrín einnig í færslunni að síðustu 15 ár hafi verið viðburðarík, stundum erfið en þó fyrst og fremst farsæl. Talar hún einnig um þeirra verstu stundir og þeirra bestu:

„En fall er farar­heill og þetta 15 ára ferðalag hefur verið viðburða­ríkt, stundum erfitt, oft skemmtilegt en fyrst og fremst farsælt.

Verstu stundirnar eigum við þegar við setjum saman húsgögn eða erum saman í bíl því við eigum það sameiginlegt að vita allt best. Bestu stundirnar eru þegar við hlæjum saman að einhverri vitleysu sem við gerum sem betur fer oft – og alltaf eftir þessar erfiðu stundir!“

Næstu orð forsætis­ráðherrans sýna hversu lítið Ísland er því þar segir hún frá því er þau hjónin hjálpuðust að við snjó­mokstur en í flestum löndum þyrftu þjóðar­leiðtogar ekki að moka sjálfir snjóinn í heim­reiðinni:

„Við sýndum til dæmis nokkra snilldar­takta núna á laugar­daginn þegar mér fannst það góð hugmynd að keyra í ófærð og stórhríð til að græja nokkrar jóla­gjafir. Eftir afar hægan akstur úr Vesturbæ í Kringluna þar sem ég tók mitt hlutverk sem aðstoðar­ökumaður mjög alvarlega við litlar vinsældir vorum við sammála um að þetta hefði mögulega ekki verið frábær hugmynd! Eftir að hafa komist klakk­laust heim enduðum við á kafi í snjó­mokstri (á meðan enn kyngdi niður snjó) þar sem við vissum að sjálfsögðu bæði best hvernig ætti nákvæmlega að moka snjó með sem skilvirkustum hætti og þessi mynd er tekin í miðju því samtali.Það eru allar þessar stundir sem láta kannski ekki mikið yfir sér en sem ég er þakklát fyrir alla daga og gera lífið svo mergjað.“

Katrín og Gunnar moka snjó.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Vildi hitta nýja kærastann og beitti fyrrverandi ofbeldi
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

„Áskorunin sem við stöndum frammi fyrir er ekki síður menningarlegs eðlis“

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti