Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sema tjáir sig um dóminn: „Sigur fyrir samfélagið þegar ofbeldisfólk er dæmt fyrir gjörðir sínar!“

Sema Erla Serdar
Sema Erla Serdar

Sema Erla Serdar tjáir sig um dóminn yfir Margréti Friðriks­dóttur sem gerður var heyrinkunnugur í dag; var Margrét, eins og Mannlíf greindi frá, dæmd í 30 daga skilorðs­bundið fangelsi vegna hótana er hún viðhafði gegn Semu Erlu:

Margrét Frið­riks­dóttir.

„Í ágúst árið 2018 fór ég til lögreglunnar til þess að kæra konu fyrir hótanir, líkams­árás og haturs­glæp eftir að hún réðst á mig með svívirðingum, morð­hótunum og líkamlegu afli fyrir utan veitinga­stað í Reykjavík. Nú, næstum hálfum áratug síðar(!), hefur konan verið sakfelld fyrir lífláts­hótanir og dæmd í 30 daga skilorðs­bundið fangelsi!“

Hún bætir við:

„Það er vissulega margt í máls­meðferð yfirvalda sem er ábótavant og mikilvægt að ræða í þaula. Tíminn, augljós­lega! Það er ólíðandi að ofbeldismál séu árum saman í kerfinu. Það er fóður fyrir frekara áreiti og ofbeldi þegar gerandi er ekki boðaður í skýrslu­töku hjá lögreglu í næstum eitt og hálft ár. Að það gleymist að bjóða brotaþola að leggja fram bótakröfu (ekki í fyrsta skipti).“

Sema Erla bætir því við að dóms­kerfið hér á landi „þvingar þolendur til þess að mæta gerendum sínum í dómssal og sæta frekara áreiti. Vanþekking á haturs­glæpum og haturs­orðræðu og áhrifum þess innan lögreglunnar og réttar­kerfisins, sem birtist meðal annars í því að skýrslu­taka yfir geranda tók eina mínútu samkvæmt gögnum máls og ekki var litið til fyrri „samskipta“ sem einkenndust af áralangri haturs­orðræðu, persónu­níði og ærumeiðingum í minn garð þegar málið var fyrst látið falla niður (ég fór með bunka af útprentuðum ummælum þegar ég gaf skýrslu).“

Einnig að „skortur á skilgreiningu á haturs­glæpum í almennum hegningar­lögum, sem umrædd kona gerist vissulega sek um, en erfitt er að ákæra fyrir ef það er ekki til í lögum? Þetta og margt annað í tengslum við þetta mál þarf að ræða og það verður örugglega gert.“

Sema Erla segir að endingu að „akkúrat núna ætla ég þó bara að leyfa mér að ná andanum aðeins og fagna því að konan sem hefur áreitt mig frá árinu 2014 og beitti mig síðar líkamlegu og andlegu ofbeldi hafi LOKSINS verið látin sæta ábyrgð fyrir gjörðir sínar!

Þetta mál hefur tekið verulega mikið á og verið erfitt fyrir mig og mitt fólk. Réttlætið sigraði þó (að minnsta kosti að einhverju leyti) að lokum! Þetta er ekki bara sigur fyrir mig heldur er það líka sigur fyrir samfélagið þegar ofbeldis­fólk er dæmt fyrir gjörðir sínar!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim