Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

UPPRIFJUN – Hvað var í síma Páls Steingrímssonar? „Ég vil stinga, snúa og strá salti í sárið“

Eins og alþjóð veit hafa fjórir blaðamenn nú stöðu sakbornings í máli er tengist umfjöllun um „Skæruliða­deild Samherja“. Blaða­mennirnir hafa verið sakaðir um að hafa nýtt sér stolið efni úr síma Páls Steingríms­sonar, skip­stjóra hjá Samherja og eins meðlima „Skæruliða­deildarinnar“, við skrif á fréttum um Samherja. En hvað var í síma Páls? Hvaða gögn var þar að finna sem mögulega áttu erindi við almenning? Hverjir eru persónur og leikendur í málinu?


Nú þarf að snúa og svo salta í sárið

„Skæruliða­deild Samherja“:

Arna Bryn­dís McClure Bald­vins­dótt­ir lög­mað­ur
Páll Stein­gríms­son skip­stjóri
Þor­björn Þórð­ar­son al­manna­teng­ill

Hvaðan kemur nafnið á þessum hópi? Frá þeim sjálfum. Stundin sagði svo frá í grein sinni um málið:

„Þessi óformlegi hópur sem virðist potturinn og pannan í málsvörn Samherja kallar sig svo skæruliða­deildina. Í samskiptum þeirra á milli er ítrekað vísað til þessa nafns. „Skæruliða­deildin er alltaf á vaktinni 😉“ segir í einum þessara skilaboða. Aðrir samfélags­miðla­notendur sem hafa talað máli Samherja eru svo sagðir tilheyra „skugga­deildinni“ og að þeir fái reglulega upplýsingar frá Páli til að nýta. Upplýsingar sem virðast gjarnan eiga uppruna sinn hjá Örnu, Þorbirni eða öðrum starfs­mönnum Samherja.“

Enn fremur kemur fram í umfjöllun Stundarinnar að orðfæri hópsins megi helst líkja við skæru­hernað. Ítrekað sé talað um að stinga og sparka í blaðamenn.

„„Vona að Óskar, Bubbi og Þorbjörn standi við það sem þeir hafa sagt við þig, að gefa ekki eftir. Við erum búin að stinga. Nú þarf að snúa og svo salta í sárið,“ skrifar Arna í skila­boðum. „Ef þið Þorbjörn eruð að spá í að stinga Jóhannes þá er hugmynd hér,“ segir hún í öðrum. Páll notar sama orðfæri líka. „Við verðum allavega klár og munum nota hvert tækifæri til að stinga svo mikið er víst 😇😇“ skrifar hann til Örnu, sem og eftir samtal við Björgólf Jóhannsson, þáverandi forstjóra Samherja: „Komdu með þína hugmynd, var að leggja á Bubba og hann vill stungu“.“

Skjáskot frá Stund­inni
Skjáskot frá Stund­inni

Færeyskir blaðamenn í sigtinu

Í Stundinni segir að skæru­hernaður hópsins hafi helst beinst gegn blaða­mönnum sem og uppljóstraranum í málinu, Jóhannesi Stef­ánssyni. Og ekki aðeins íslenskum blaða­mönnum því gögnin sýna samskipti milli Þorbjörns og Örnu þar sem þau reyna að sverta orðspor færeysku blaða­mannanna Jans Lamhauge og Barböru Hólm eftir að heimilda­mynd þeirra Hinir óseðjandi birtist. Fjallaði myndin um meint skatta­lagabrot Samherja í Færeyjum.

„Myndin, sem unnin var í samstarfi við frétta­menn Kveiks, afhjúpaði hvernig Samherji hafði misnotað heimild í færeyskum lögum til að fá skatta sjómanna sinna endur­greidda. Það gerðu þeir með því að skrá íslenska starfs­menn á verksmiðju­togurum undan Afríku­ströndum sem farmenn á frakt­skipum. Ólíkt öðrum uppljóstrunum í tengslum við starfsemi Samherja og hugsanleg lögbrot brást Samherji ekki við með tilkynningu á vefsíðu sinni heldur endur­greiddi dóttur­félag Samherja – Framherji – færeyska skattinum 17 milljónir danskra króna, jafnvirði um 350 milljónir íslenskra króna. Færeyski skatturinn hefur kært málið til lögreglunnar,“ segir í frétt Stundarinnar.

Þáttur Páls Steingrímssonar

Þáttur skip­stjórans Páls Steingríms­sonar í „Skæruliða­deildinni“ var aðallega sá að verja Samherja með kjafti og klóm á samfélags­miðlum og í blöðum, með pistlum sem ýmist voru skrifaðir af honum sjálfum eða af Þorbirni og Örnu, en í nafni Páls. Margrét Ólafs­dóttir, ritari Þorsteins Más Baldvins­sonar, forstjóra Samherja, sendi Páli tölvupóst þar sem hún segir honum frá viðbrögðum Þorbjörns við tillögu Páls. Kjarninn greinir svo frá:

„Póst­ur­inn var til Páls Stein­gríms­son­ar, skip­stjóra hjá Sam­herja, til að láta hann vita að Þor­björn hefði verið ánægður með til­lögu sem Mar­grét hafði lagt fyrir hann. Til­lagan var eft­ir­far­andi: „Ég fékk skila­boð frá einum af skip­stjór­unum okkar Páli Stein­gríms­syni. Hann hefur verið mjög „aktíf­ur“ að skrifa bæði í blöð og á sam­fé­lags­miðlum og getur svarað fyrir sig. Hann sem sagt býður fram krafta sína ef við þurfum nafn á ein­hver skrif.“

Heiti tölvu­pósts sem Mar­grét hafði sent á Þor­björn, og áfram­sendi nú á Pál, var „Nafn á skrif“.

Þor­björn svar­aði: „Frá­bært að vita af þessu. Ég vista núm­erið hans og net­fang. Mér finnst mjög lík­legt að þetta nýt­ist“.“

Fjöldi tölvu­pósta sem Stundir hefur undir höndum sýnir að Þorbjörn ritstýrði og jafnvel skrifaði að öllu leyti margar af þeim greinum sem birtust á Vísi í nafni Páls Steingríms­sonar.

„Fjölmörg tölvu­skeyti fara á milli Þorbjörns og Páls þar sem Þorbjörn ýmist skrifar heilu grein­arnar eða ritstýrir þeim. Páll býður honum til að mynda að „matreiða“ greinar eins og honum „best þyki“; greinar sem eru síðar birtar í nafni skip­stjórans. Það boð þiggur Þorbjörn. Ein þessa greina, Saklaus uns sekt er sönnuð, tekur til að mynda svo stórkost­legum breytingum í meðförum hans að í rúmlega 900 orða grein eru aðeins 88 komin frá Páli. Öll hin skrifar Þorbjörn. Það er líka raunin með grein­arnar Ritsóðinn Helgi Seljan númer I og II. Þær fær Páll sendar frá Þorbirni fullbúnar, þótt hann fái tækifæri til að hafa skoðun á greinunum sem birtar eru í hans nafni.“

Gekk Þorbjörn svo langt að stinga upp á að Páll ýjaði í pistlum sínum að andlegri vanheilsu Helga Seljan blaðmanns.

„„Hvernig fannst þér síðasti kaflinn um skrif á samfélags­miðlum almennt? Kannski full dramatískur? Svo erum við þarna aðeins að velta fyrir okkur andlegri líðan Seljan. Það verður áhugavert að sjá viðbrögðin við því,“ skrifar Þorbjörn. Í þessum síðasta kafla er gengið langt í að ýja að því að geðheil­brigði Helga sé ábótavant og að hann glími við vanlíðan og mikla þörf fyrir viðurkenningu. Í greininni segir meðal annars að það sé „kannski verkefni fyrir aðra en skip­stjóra sem hefur ekki sérþekkingu á geðheil­brigði“ að velta fyrir sér lundar­fari og andlegri líðan Helga. Þetta þykir Páli  ekki of langt gengið, eða eins og hann segir í skila­boðum til Þorbjörns: „Nei, við skulum alls ekki sleppa drama­tíkinni, er svo í anda Helga Seljan finnst mér“.“

Teslan hans Hallgríms Helgasonar

Samkvæmt Stundinni virtist hópurinn hafa haft fleiri einstaklinga í sigtinu en blaðamenn, en rithöfundurinn Hall­grímur Helgason var einn þeirra. Hann hafði skrifað grein þar sem hann fjallaði um Samherja.

„Í tölvupóst­samskiptum Þorbjörns við Pál koma fram hugmyndir þess síðarnefnda að svara grein Hallgríms, Skilið þýfinu, sem fjallar um Samherja, með því að spyrja hvort hann hafi „farið í neðstu skúffuna og fundið samviskuna sína eins og Jóhannes, og ætli að skila öllum listamanna­laununum sem hann hefur þegið í gegnum árin, fengið samviskubit eftir að hafa bónað Tesluna sína og hlustað á fréttir af rafmagns­leysinu á lands­byggðinni um leið, batnandi mönnum er best að lifa.“ Hann ætti hins vegar eftir að fá „staðfest að Hall­grímur eigi tesluna en ekki nágranni hans, er að bíða eftir svari um það“. Það sagðist Þorbjörn geta gert, verandi með aðgang að fasteigna- og bifreiða­skrá. Eitthvað sem Páli þótti ánægjulegt og tveggja broskalla virði: „Glæsilegt 😀 þú ert rétti maðurinn fyrir okkur hjá Samherja :D“

Niður­staðan var að Hall­grímur átti ekki Tesluna, heldur nágranninn, og ekkert varð af greininni.“

Með vitund toppanna

Samkvæmt Stundinni virðist allt það sem „Skæruliða­deildin“ gerði hafi verið með vilja og vitund Þorsteins Más forstjóra og Björgólfs Jóhanns­sonar sem leysti Þorstein af tíma­bundið. Í samskiptunum er talað um að „mennirnir“ þurfi að gefa grænt ljós og ku Stundin hafa fjölmörg dæmi um að greinar og athuga­semdir hafi verið senda þeim til yfir­lestrar fyrir birtingu.

„Í samskiptum á milli þessara einstaklinga kemur fram að Þorsteinn og Björgólfur séu ánægðir með hópinn og það sem þau gera. Sjálfur er Þorsteinn í beinum samskiptum við þennan hóp. Vísað er til símtala, samtala og funda með Þorsteini og ánægju hans með það sem fram fer. Hann hefur þó líka sett fótinn niður. Þannig lýsir Arna því að hún sé að skrifa samantekt sem hún viti ekki hvernig Þorsteinn muni bregðast við,“ segir í frétt Stundarinnar.

Þá kemur fram í fréttinni að Páll skip­stjóri segist halda Þorsteini upplýstum. „„En ég átti smá spjall við þmb í gærkvöldi,“ skrifar hann og heldur áfram: „Eins ræddum við að ég myndi halda áfram að setja fram þessa pósta af Wikileaks sem við höfum verið að setja fram, ég sagðist bara vera upptekin í vinnunni og þá hló hann bara, svo það liggur vel á honum,“ skrifar hann til Örnu.“

Einnig var Björgólfur í beinum samskiptum við Pál og hvetur hann áfram að sögn Stundarinnar. „Neglum þá,“ skrifar hann til Páls og á við þá sem gagnrýna fyrir­tækið og flytja af því fréttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Í grein fyrir breska lesendur lýsir Kristjana Guðbrandsdóttir því hvernig hún nýtur vetrarins í Reykjavík án þess að treysta alfarið á húshitun.
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki