Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Þjáning og sigrar Sigurlaugar

Sigurlaug Helga á að baki mikla þjáninga­sögu þótt hún sé aðeins rúmlega fertug að aldri. Hún er eitt fórnar­lamba Covid. Sigurlaug er að vísu ein þeirra heppnu. Eftir að hafa farið tvígang í öndunarvél reis hún upp og sigraði dauðann.

Læknum þykir undravert að Sigurlaug hafi lifað af þann hrylling sem hún lýsir í forsíðu­viðtali við Mannlíf. Rétt eins og stór hluti mannkyns þá smitaðist Sigurlaug af Covid-19. Í fyrstu benti ekkert til annars en að hún myndi rísa upp frá tiltölu­lega léttvægum veikindum. En þetta fór á annan veg. Hún veiktist hastarlega og mátti engu muna að hún næði ekki að kalla eftir hjálp. Hún var flutt á spítala og fljótlega sett í öndunarvél. Þar var hún við dauðans dyr, dögum saman. Lífs­líkurnar voru hverfandi. En hún lifði af og reis nánast upp frá dauðum. Eftir langa endur­hæfingu náði hún bata. En sálin var í ólagi. Mánuðina á eftir vildi hún helst ekki lifa. Svart­nættið náði tökum á henni og hún lokaði sig af. Óttinn við hið ókomna var ráðandi og hún hafði svo sannarlega ástæðu til að óttast. Örfáum dögum eftir fertugsafmælið reið næsta áfall yfir. Hún fékk lungna­bólgu og var aftur sett í öndunarvél þar sem hún barðist enn fyrir líf sínu.

Sigurlaug Helga segir frá því í viðtalinu að hún hafi sigrast öðru sinni á lífs­háskanum. Saga hennar er svo sannarlega sláandi. Hún komst lifandi úr öndunar­vélinni og hóf strax endur­hæfingu. Tveimur mánuðum síðar er hún búin að ná gríðar­legum árangri. Þvert á spár lækna er hún að nálgast það að vera fullfrísk.

Nærtækasta skýringin á hinum undra­verða bata er sú að Sigurlaug Helga býr að því að hafa stundað íþróttir á árum áður. Hún var fimleika­stjarna og lagði grunn að þeim styrk sem hefur bjargað henni frá þeim háska sem steðjað hefur að undan­farið ár. Sá lærdómur sem draga má af sögu hennar er að heilsu­rækt er gríðar­lega mikilvæg til þess að geta betur mætt áföllum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim