Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Pétur Jóhann sagði sig úr Kirkjunni: „Klukkan tvær mínútur yfir fimm … um nótt“

Pétur Jóhann Sigfússon
Pétur Jóhann Sig­fús­son

„Þetta er ástæðan að fólk á ekk­ert að vera á net­inu … drukkið,“ sagði grínist­inn og gleði­gjaf­inn, Pétur Jóhann Sig­fús­son sem sat fyrir svörum í Bítinu á Bylgj­unni í morgun. Samtalið hafði snú­ist um ólíkar birt­inga­myndir ein­stak­linga í raun­heimum og á netheimum.

„Talandi um að vera búinn að fá sér aðeins of mikið,“ segir Pétur og segir frá því þegar hann sagði sig einu sinni úr íslensku þjóð­kirkj­unni. „Prest­son­ur­inn sjálfur,“ skýtur Þorkell Máni inn í sem einnig var við­mæl­andi í þætt­inum.

„Já, en ég sagði mig sko ekki úr henni. Ég gekk ekki alla leið,“ segir Pétur Jóhann og býðst til að finna umræddan tölvu­póst. „Ég er ekki stoltur af þessu,“ segir hann eftir að hafa við­kennt að þetta sé ekki partur af fréttum vik­unnar en póst­inn skrif­aði hann 2012.

„Klukkan tvær mín­útur yfir fimm … um nótt,“ útskýrir hann og seg­ist hafa verið nýbú­inn að lesa frétt sem tengd­ist Kirkj­unni.

„Þetta er auð­vitað alveg eins og for­eldrar mínir séu systk­ini eða eitt­hvað,“ segir Pétur Jóhann og upp­sker mik­inn hlátur. Pétur hefur lest­ur­inn á póst­inum sem hann sendi á [email protected]:

„Sæl verið þið öll …“

Þorkell Máni grípur fram í: „… eins og það hafi verið margir að lesa póst­inn.“

„Ég er að hug­leiða að segja mig úr Þjóð­kirkj­unni. Það væri gaman að heyra frá ein­hverjum sem gæti sann­fært mig um annað. Bestu kveðjur Pétur Jóhann.“

Hljóðver Bítisins ætlar um koll að keyra svo mik­ill er hlát­ur­inn.

„Það kom svaka­legt svar hérna frá þeim,“ segir Pétur Jóhann og útskýrir að honum hafi borist svar frá Kirkj­unni, öðrum við­stöddum til mik­illar undr­unar.

„Já, já já – Þó á aðeins kristi­legri tíma,“ svarar Jóhann Pétur.

Hann stiklar á stóru frá svar­inu sem honum barst frá Kirkj­unni.

„Leitt að heyra að þú sért í þessum hug­leið­ingum. Þjóð­kirkjan vill að sjálf­sögðu hafa þig inn­an­borðs – og svona sko,“ og útkýrir að hann hafi ekki við­haldið sam­tal­inu og segir í gríni að hann hafi sett allt inn­an­búðar hjá Kirkj­unni á aðra hlið­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Nikulás sást síðast á þriðjudag. Hann var þá með bláan bakpoka og klæddur í grænan sumarjakka.
Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027