Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Tveir lögreglumenn í Reykjavík gerðust ítrekað brotlegir í starfi: Dæmdir í skilorðsbundið fangelsi

Ekki er óþekkt að lögreglu­menn jafnt sem aðrir gerist brotlegir í starfi. Mál af þeim toga rata ekki alltaf í dómsal. Tveir lögreglu­menn sátu þó undir kæru fyrir fimm brot í starfi, með því að hafa meðal annars notast við táragas að óþarfa og síðan logið til um aðstæður í skýrslu til að réttlæta brot sín.

 „Tveir lögreglumenn í Reykjavík hafa verið ákærðir fyrir fimm saknæm brot í starfi. Öðrum þeirra er gefið að sök að hafa fjórum sinnum átt þátt í brotunum en í það fimmta er hinn m.a. ákærður fyrir að skrá ranglega að „mikil múgæsing hafi myndast á vettvangi“ til að réttlæta að nauðsynlegt hefði verið að nota úðavopn (mace) til þess að lögregla kæmist af vettvangi.

Annar lögreglumannanna lýsti því yfir fyrir dómi í gær að um 300 lögreglumenn biðu niðurstöðu í þessu dómsmáli því mætti búast við að fjöldi lögreglumanna myndi mæta þegar réttað yrði með viðeigandi yfirheyrslum. Var látið í það skína, þegar málið var tekið fyrir í gær, að ekki yrði nægilegt rými fyrir tilheyrendur í komandi réttarhöldum sem fara fram þann 7. október,“ segir í frétt DV frá árinu 2003

Ríkis­saksóknari var með mál mannana til rann­sóknar í nokkra mánuði áður en ákæra var gefin út.

Mennirnir voru sagðir hafa beitt ólöglegum handtökum, falsað skýrslur og gerst brotlegir í opinberu starfi. Brota­þolar í málinu voru þrír.

Annar mannana var ákærður fyrir að handtaka og færa 23 ára mann í fanga­klefa á Hverfis­götu, án ástæðu né heimildar.

Næstu nótt voru mennirnir tveir sem ákærðir voru, saman á Tryggva­götu. Þar handtóku þeir 32 ára karlmann og færðu hann á lögreglu­stöðina, án nægilegra ástæðna.

Þriðja brotið varð í sama máli, annar lögreglu­mannana skráði rangar upplýsingar við skýrslu­gerð:

„Þar hafi hann skráð að mikil múgæsing hafi myndast á vettvangi, ástandið verið mjög eldfimt og að notkun úðavopns hafi verið nauðsynleg til að lögregla kæmist af vettvangi án þess að til frekari átaka kæmi.“

Í fjórða málinu var annar mannanna kærður fyrir að hafa notað úðavopn á 31 árs karlmann, án nægilegs tilefnis. Þá hafi hann skráð rangar upplýsingar í skýrslu.

Mönnunum var báðum sagt upp störfum um leið og rannsókn á þeim hófst.

Þeir voru síðar dæmdir skilorðs­bundið fangelsi, annar þeirra í fimm mánuði og hinn í þrjá mánuði.

Einnig var þeim gert að greiða einum mannanna sem þeir handtóku 100 þúsund krónur í bætur og 60 þúsund krónur fyrir máls­kostnaði mannsins.

Þá voru þeir dæmdir til að greiða verjendum sínum 700 þúsund krónur í málsvarnar­laun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna