Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Fyrrverandi sendiherra Breta handtekinn eftir samstöðufund með Palestínu á Austurvelli

Craig Murrey
Craig Murrey Mynd: Trausti Hafsteinsson

Fyrr­verandi sendi­herra Breta, Craig Murray, var hand­tekinn í Glasgow í gær eftir að hafa sótt samstöðu­fund með Palestínu á Íslandi.

Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks benti á það í gær að gestur hans á Íslandi, Craig Murrey, fyrr­verandi sendi­herra Breta og uppljóstrari, sem mætti á samstöðu­fund með Palestínu­mönnum á Austur­velli á sunnu­daginn, hafi verið stöðvaður á flug­vellinum í Glasgow af lögreglunni sem vísaði til Hryðjuverka­laga. Ákvæði er í þeim lögum sem heimilar breskri landamæra­lögreglu að setja menn í hald án nokkurra skýringa og heimta af viðkomandi tölvur og síma og aðgangsorð að þeim tækjum, ellegar verði þeir hand­teknir og kærðir fyrir brot á lögunum. Kristinn segir að Craig hafi aukreitis verið krafinn svara um mætinguna á samstöðu­fundinn á Austur­velli, sem og um tengsl sín við WikiLeaks og Julian Assange. „Ég spyr, er runnið algert andskotans ofsókna­ræði á menn? Hversu lengi ætlar almenningur að líða svona hraðskrið í átt að algjöru afnámi okkar grunn­réttinda áður en rétt þykir að vakna úr svefn­rofanum.“

Færslu Kristinns má lesa hér:

„Um helgina var Craig Murray, fyrr­verandi sendi­herra Breta og uppljóstari, gestur minn á Íslandi. Hann hefur stutt við bakið á barátt­unni fyrir frelsi Julian Assange en það hefur Ögmundur Jónasson einnig gert ötullega. Þeir hafa oftar en ekki talað á sömu fundunum erlendis og þekkjast vel. Við Craig mættum á samstöðu­fund með Palestínu­mönnum á Austur­velli í gær og köstuðum m.a. kveðju á Ögmund.

Þegar Craig flaug til baka til Skotlands fyrr í dag var hann settur í hald á flug­vellinum í Glasgow af lögreglunni sem vísaði til Hryðjuverka­laga (Prevention of Terrorism Act) en þar undir er ákvæði (Schedule 7) sem heimilar breskri landamæra­lögreglu að setja menn í hald án nokkurra skýringa og krefjast þess að viðkomandi afhendi tölvur og síma ásamt með aðgangs­orðum – ella er hægt að setja menn í varðhald og kæra menn fyrir brot á lögunum. Auk þess að hirða af Craig raftæki var hann krafinn svara um mætinguna á fundinn á Austur­velli í gær sem og um tengsl við WikiLeaks og Julian Assange.Ég spyr, er runnið algert andskotans ofsókna­ræði á menn? Hversu lengi ætlar almenningur að líða svona hraðskrið í átt að algjöru afnámi okkar grunn­réttinda áður en rétt þykir að vakna úr svefn­rofanum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Slysið varð aðfaranótt sunnudags á blautum vegi við Flúðir.
Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku