Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Fólk

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Svala komst heim fyrir páska: „Framundan er endurhæfing sem mun vafalaust reyna á þolinmæðina“

Svala Fanney
Svala Fanney Mynd: Instagram-skjáskot

Svala Fanney Snædahl Njáls­dóttir komst heim fyrir páska eins og hún lof­aði en hún veikt­ist snögg­lega fyrir stuttu og lá inni á Sjúkra­hús­inu á Akureyri.

Sjá einnig: Svala veikt­ist hratt og á nú erfitt með gang: „Þakka ykkur kær­lega fyrir allar fal­legu kveðj­urnar“

Grunn­skóla­kenn­ar­inn og áhrifa­vald­ur­inn Svala Fanney Snædahl veikt­ist snögg­lega fyrir rúm­lega viku síðan, en Mannlíf fjall­aði um málið um helg­ina. Eftir að hafa fengið flensu fór Svala að missa mátt í fót­unum og hreyfi­getu og stuttu síðar hætti hægri hönd hennar að hlýða henni. Fór svo að Svala fór á bráða­mót­tök­una á Sjúkra­húsi Akur­eyrar þar sem hún fór í alls kyns rann­sóknir en hún lof­aði fylgj­endum sínum á Instagram og sjálfri sér að hún skyldi kom­ast heim fyrir páska. Og henni tókst það enda harð­jaxl af dýr­ari gerð­inni.

Svala birti mynd­skeið á Instagram þar sem hún sést ganga út af Sjúkra­húsi Akur­eyrar og ferð­ast heim til Greni­víkur. Við færsl­una skrif­aði hún texta þar sem hún segir hvað hafi komið út úr rann­sókn­unum og hvað sé nú framundan. Færsluna má lesa hér fyrir neðan en mynd­bandið er svo neðst.

„Eftir 8 daga á sjúkra­húsi var ég útskrifuð og er komin heim á vík­ina mína fögru!!
Ég veikt­ist af flensu og í kjö­farið af bráðum fjöltauga­kvilla (polyne­uropathy) sem veldur truflun á starf­semi margra tauga í senn og veldur m.a. nála­dofa, tauga­verkjum og mátt­leysi í höndum og fótum..
Ég verð í eft­ir­liti hjá tauga­lækni en góðu frétt­irnar eru að svona gengur yfir­leitt til­baka að mestu eða öllu leyti🙏🏻
Framundan er end­ur­hæf­ing sem mun vafa­laust reyna á þol­in­mæð­ina en ég er bjart­sýn og ætla að klára þetta lang­hlaup á mínum hraða 💪🏻😊
Ég svo inni­lega þakk­lát fyrir fólkið mitt besta, starfs­fólkið á sjúkra­hús­inu sem hugs­aði vel um mig og bara lífið sjálft.
Lífið er núna svo höfum gaman, njótum og verum góð við hvert annað✨💖“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Guðmundur Ingi Kristinsson sagði heildareignir tryggingafélaganna hafa numið 360 milljörðum króna í febrúar og kallaði eftir uppgjöri bótasjóða.
Pólitík

Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Innlent

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Menning

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027