Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Til eru 86 tegundir kynhneigðar og fjölgar enn – Sjáðu listann

Frá Gay-pride göngu erlendis.
Frá Gay-pride göngu erlendis. Mynd: Ted Eytan: https://www.flickr.com/photos/taedc/48868041737

Í nýjasta blaði Lifandi vísinda er áhugaverð grein um tegundir kynhneigðar sem á síðustu árum hefur heldur betur fjölgað.

Áður fyrr var aðallega talað um þrjár gerðir kynhneigðar, gagn­kynhneigð, samkyn­hneigð og tvíkynhneigð. Í dag hefur hneigðunum aldeilis fjölgað og stöðugt bætast fleiri við.

Í Lifandi vísindum er

grein

um þetta en samkvæmt blaðinu er kynhneigð breitt hugtak sem ekki á aðeins við um kynlíf og aðlöðun, heldur einnig ást, nánd og sambönd við aðra einstaklinga.Alþjóða­heilbrigðis­stofnunin WHO skilgreinir kynhneigð á eftir­farandi hátt (í þýðingu Lifandi vísinda):

„Kjarni þess að vera mennskur er að leggja stund á kynlíf, kynvitund og -hlutverk, kynhneigð, ástar­hneigð, nautn, nánd og fjölgun. Kynhneigð upplifum við og látum í ljós með hugsunum, órum, óskum, sann­færingum, viðhorfum, gerðum, hefðum, hlut­verkum og samskiptum. Þó svo hins vegar að kynhneigð geti falið í sér alla þessa þætti er ekki svo að við skynjum né látum í ljós alla þeirra. Kynhneigð verður fyrir áhrifum af víxlverkun milli líffræðilegra, sálrænna, félagslegra, efnahagslegra, stjórnmálalegra, menningarlegra, lagalegra, sögulegra, trúarlegra og andlegra þátta.“

En hvað finnast margar kynhneigðir?

Í greininni segir að afar erfitt sé að útbúa tæmandi yfirlit yfir allar gerðir kynhneigðar vegna þess að kynhneigð er ansi persónuleg og einstaklings­bundin tilfinning. Í rauninni nægir að einhver einstaklingur lýsi sínu kynferðis­lega eftirlæti á nýjan og þá hefur bæst við ný kynhneigð. Eftir því sem við verðum meðvitaðri um málefnið fjölgar stöðugt hugtökum sem tákna ólíka kynhneigð.

Hér fyrir neðan má finna yfirlit yfir 86 meira eða minna viðurkenndar gerðir kynhneigðar. Birtast orðin á listanum á ensku með lauslegri íslenskri þýðingu Lifandi Vísinda:

  • Abnosexuality (sveiflu­kynhneigð)
  • Abrosexuality (skipti­kynhneigð)
  • Aceflux (kynleysis­hneigð)
  • Aegosexuality (vanþátttöku­hneigð)
  • Aequesexuality (kynlífs­löngunar­hneigð)
  • Agynosexuality (kvenleika­skorts­hneigð)
  • Akoisexuality (vanendurgjalds­hneigð)
  • Alloromantic (alástar­hneigð)
  • Allosexuality (alkynhneigð)
  • Amorplatonic (ástar­andleg hneigð)
  • Ambisexuality (tvíræð kynhneigð)
  • Androbisexuality (karlmennsku­tvíkynhneigð)
  • Androflexible (karlmennsku­sveiflu­hneigð)
  • Androgynosexuality (tvíkynja­kynhneigð)
  • Androsexuality (karla­hneigð)
  • Antrosexuality (vankynhneigð)
  • Apothisexuality (kynlífs­stundunaróbeitar­hneigð)
  • Aromantic (ástleysis­hneigð)
  • Asexuality (eikynhneigð)
  • Auto romantic (sjálfskynhneigð)
  • Autosexuality (sjálfskynlífs­hneigð)
  • Avansexuality (kynseginhneigð)
  • Bicurious (tvíáhuga­hneigð)
  • Biromantic (tvíástar­hneigð)
  • Bisexuality (tvíkynhneigð)
  • Bi+sexuality (tví+kynhneigð)
  • Casssexuality (áhugaleysis­kynhneigð)
  • Ceasesexuality (tíma­bundin kynhneigð)
  • Coeosexuality (fyrsta­skiptis­kynhneigð)
  • Cupidosexuality (líkamleg kynhneigð)
  • Cupiosexuality (ástar­hneigðar­skortur)
  • Ceterosexuality (kynseginsleysishneigð)
  • Demi romantic (tilfinninga­ástarhneigð)
  • Demisexuality (tilfinninga­kynhneigð)
  • Femmesexuality (kvenleika­kynhneigð)
  • Fictosexuality (ímyndunar­veruhneigð)
  • Finsexuality (kveneðlis­kynhneigð)
  • Flexisexuality (sveigjanleg kynhneigð)
  • Fraysexuality (ókunnugrakynhneigð)
  • Gay (hýr)
  • Graysexuality (grá einkyn­hneigð)
  • Grayromantic (lítt­ástarhneigð)
  • Gynesexuality/gynosexuality (kven­kynhneigð)
  • Heteromantic (gagnástar­hneigð)
  • Heterosexuality (gagn­kynhneigð)
  • Homo romantic (samástar­hneigð)
  • Homosexuality (samkyn­hneigð)
  • Iculasexuality (kynlífs­hneigð)
  • Kalossexuality (vanlöngunar­hneigð)
  • Lamvanosexuality (eigin­kynhneigð)
  • Lesbian (lesbíu­kynhneigð)
  • Libidoist asexuality (sjálfs­fróunar­hneigð)
  • Limnosexuality (myndörvunar­hneigð)
  • Lithosexuality (einstefnu­kynhneigð)
  • Masexuality (alkarla­hneigð)
  • Mascusexuality (karlmennsku­kynhneigð)
  • Minsexuality (karleðlis­kynhneigð)
  • Monosexuality (einkyn­hneigð)
  • Multisexuality (margkynja­hneigð)
  • Mutosexuality (snögg­breyti­kynhneigð)
  • Narysexuality (kynseginhrifningarhneigð)
  • Neusexuality (kynlausrahneigð)
  • Ninsexuality (alkynseginhneigð)
  • Nonlibidoist asexuality (kynhvatalausrahneigð)
  • Novosexuality (breyti­kynhneigð)
  • Omnisexuality (allrakynjahneigð)
  • Onesexuality (eins­rekkju­nautar­hneigð)
  • Pansexuality (pankynhneigð)
  • Panromantic (panástar­hneigð)
  • Penultisexuality (undan­skilin samkyn­hneigð)
  • Polysexuality (fjöl­kynhneigð)
  • Pomosexuality (kynhneigðar­leysi)
  • Proculsexuality (vonleysis­kynhneigð)
  • Queer (hinsegin­hneigð)
  • Sanssexuality (handahófs kynhneigð)
  • Sapiosexuality (greindar­kynhneigð)
  • Sex-averse (kynlífs­fráhverfu­hneigð)
  • Sex-favorable (kynlífs­áhugahneigð)
  • Sex-indifferent (kynlífs­tómlætis­hneigð)
  • Sex-repulsed (kynlífs­óbeitar­hneigð)
  • Skoliosexuality (kynskiptinga­hneigð)
  • Spectrasexuality (fjöl­kynjahneigð)
  • Taosexuality (árukynhneigð)
  • Zygosexuality (marg­félaga­kynhneigð)

Samkvæmt Lifandi vísindum er yfirlitið þetta samsett úr ýmsum heimildum, m.a. Medical News Today, Healthline, Unite og Webmd.

Þá má lesa hér nokkrar útskýringar Lifandi vísinda á nokkrum kynhneigðum sem þekktust ekki á árum áður:

KYNLEYSISHNEIGÐ (ASEXUALITY)

Þeir sem teljast vera haldnir kynleysis­hneigð hafa enga eða litla löngun til að stunda kynlíf með öðrum, óháð kyni þeirra.

Þessir einstaklingar geta þó engu að síður borið heitar tilfinningar í garð maka, átt í ástar­sambandi eða stundað kynlíf.

Sumir þeirra sem aðhyllast kynleysis­hneigð fá fullnægju af sjálfs­fróun á meðan aðrir fá stöku sinnum löngun í kynlíf. Þeir sem finna aldrei fyrir slíkri löngun teljast enga kynhvöt hafa.

PANKYNHNEIGÐ

Með pankynhneigð er átt við einstaklinga sem laðast að öllum kyneinkennum eða í raun, öllu fólki, óháð kyneinkennum þess.

TILFINNINGAKYNHNEIGÐ (DEMISEXUALITY)

Með hugtakinu tilfinninga­kynhneigð er átt við þá sem laðast fyrst kynferðis­lega að öðrum einstaklingi eftir að hafa bundist honum tilfinninga­böndum.

ALKYNHNEIGÐ (ALLOSEXUALITY)

Þeir sem samsama sig við alkynhneigð laðast reglulega að öðru fólki kynferðis­lega. Þetta er með öðrum orðum andstætt við það að vera með kynleysis­hneigð og langflestir eru með svokallaða alkynhneigð.

KVENEÐLISKYNHNEIGÐ (FINSEXUALITY)

Þeir sem eru með kveneðlis­hneigð laðast ekki að öðru kyninu umfram hinu, heldur að fólki sem er kvenlegt.

Þetta táknar að þeir sem eru með kveneðlis­hneigð laðast að kvenlegum einstaklingum, hvort heldur þeir kunna að vera fæddir sem konur, kvenlegir karlar, kynsegin verur eða trans­konur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“