Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ásakanir Steinunnar um arðgreiðslur Íslandshótela rangar: 800 manns deildu færslunni

Myndin er samsett
Myndin er sam­sett

Steinunn Ólína Þorsteins­dóttir fór með rangt mál þegar hún sakaði Íslands­hótel um að hafa greitt arðgreiðslur á sama tíma og fyrir­tækið hafi þegið uppsagna­styrk upp á 642 milljónir. Steinunn sendi frá sér Facebook-færslu á dögunum um hvernig leysa mætti kjara­deilu verka­fólks sem starfar hjá Íslands­hótelum. Færslan fékk hátt í 800 deilingar. Þar fullyrðir Steinunn að íslenska þjóðin hafi borið hótel­keðjuna í gegnum Covid faraldurinn og gefið hótel­keðjunni fjármuni, sem á sama tíma hafi  greitt hluthöfum sínum út arð:

„Á sama tíma greiddu eigendur Íslands­hótela sér 600 milljónir kr. í arð. En það þykir auðvitað dóna­skapur að velta því fyrir sér hvað fólk gerir fyrir gjafafé. Svo sögðu þeir upp ríflega 500 manns.“ 

Rangfærslur um arðgreiðslur

Til rökstuðnings vísaði Steinunn Ólína í hlekk frá febrúar 2021 í síðu Kveiks á RÚV en þar segir: „Stjórn­völd hafa styrkt fyrirtæki landsins um milljarða króna til að greiða laun starfs­fólks á uppsagnar­fresti. Sum fyrir­tækjanna höfðu greitt hluthöfum sínum hundruð milljóna, jafnvel milljarða, í arð árin fyrir faraldurinn.“ 

Mannlíf kynnti sér ársreikninga Íslands­hótela á tíma­bilinu 2018 – 2022 en enginn arður hefur verið greiddur frá 2020. Eru því full­yrðingar sem koma fram í færslunni rangar. Rétt er að árin fyrir Covid faraldurinn greiddi fyrir­tækið hluthöfum arðgreiðslur.

Styrkirnir sem vísað er í voru sérstakir uppsagnar­styrkir en voru þeir ný tegund ríkis­styrkja ætlaðir fyrir­tækjum í fjárhags­kröggum sökum faraldursins. Ríkið hljóp þar með undir bagga og greiddi uppsagnar­frest starfs­fólksins. Skilyrði styrk­veitingar ríkisins var að fyrirtæki gætu sýnt fram á að að minnsta kosti 75 prósent samdráttur hafi orðið í rekstri vegna Covid faraldursins.

Þá ýjar Steinunn að því að rétt væri að Íslands­hótel ættu að þakka þjóðinni fyrir sig og sakar fyrir­tækið um að halda starfs­fólki sínu í sára­fátækt:

„Þá munar ekkert um það og það myndi sýna okkur þjóðinni sem bar Íslands­hótel á höndum sér í gegnum Covid að þeir skilji að þeir standa í þakkar­skuld við okkur og samfélagið okkar sem vill ekki að verkafólk sem vinnur erfiðis­vinnu á hótelum þeirra sé haldið í sára­fátækt.

Íslands­hótel myndu líka með því sýna samfélags­lega ábyrgð sem er alltaf smart move fyrir fyrirtæki. Íslands­hótel gætu að auki sannað að starfs­fólk þeirra er metið að verð­leikum og að á sann­gjarnar kröfur þeirra er hlustað á sama hátt og íslenska þjóðin svaraði kalli Íslands­hótela á erfiðum tímum.“

Fyrstu verkföll Eflingar

Efling hóf ótíma­bundin verkföll liðlega 300 félags­manna 7. febrúar síðastliðinn hjá sjö hótelum á höfuð­borgar­svæðinu sem öll tilheyra Íslands­hótelum. Í dag rúmri viku seinna munu fleiri hótel bætast í hópinn. Hátt hefur farið fyrir framgangi félags­manna Eflingar í verkfalls­vörslu hjá Íslands­hótelum en frést hefur að 30 manna hópur hafi mætt með gjallar­horn, ónáðað gesti þannig að nágrannar og starfs­fólk hótelanna þurfti að kalla eftir aðstoð lögreglu.

Mannlíf leitaði viðbragða Davíðs Torfa Ólafs­sonar, framkvæmda­stjóra Íslands­hótela sem staðfesti að um rang­færslur væri að ræða í færslu Stein­unnar Ólínu.

Hér að neðan má sjá færslu Stein­unnar í heild:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim