Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Regnbogabrú í Mosfellsbæ vekur áhyggjur vegna slysahættu

Vega­gerðin vísar ábyrgðinni á Mosfellsbæ

Heilmáluðu brúna í Mosfellsbæ
Heil­mál­uðu brúna í Mos­fellsbæ Máluð göngu­brú yfir Vest­ur­lands­veg sögð geta orðið fljúg­andi hál Mynd: Facebook/Guðlaug Sjöfn Jónsdóttir

Íbúar og vegfarendur í Mosfellsbæ lýsa yfir þungum áhyggjum af aukinni slysa­hættu eftir að yfirborð göngu- og hjóla­brúarinnar yfir Vestur­landsveg var heilmálað á dögunum í regnboga­litunum.

Vinnu­skóli Mosfells­bæjar sá um málunar­vinnuna á austari brúnni, sem á að minna á regn­bogabrúna Bifröst. Þótt mörgum þyki framtakið fallegt hefur vinnan vakið upp harðar umræður um umferðar­öryggi inni í hópnum Mosó-bærinn okkar. Íbúar óttast að yfir­borðið verði fljúgandi hált í bleytu, en mikill fjöldi barna og full­orðinna hjólar og gengur um brúna daglega.

Guðlaug Sjöfn Jóns­dóttir hrósaði Mosfellsbæ fyrir vinnuna:

„Flott framtak hjá bænum.

Austari brúin yfir Vestur­landsveginn orðin að sann­kallaðri Bifröst“

Óvissa um ábyrgð og leyfi

Ingimundur Stef­ánsson fór á stúfana en hann var ekki viss um hvort málningar­vinnan stæðist strangar kröfur um hálkuvörn. Skoðun á ákvarðana­ferlinu leiddi í ljós ákveðna óvissu á milli stofnana um hver beri ábyrgð á viðhaldi brúarinnar.

Í fyrstu segist hann hafa fengið upplýsingar hjá skipti­borði Mosfells­bæjar um að Vega­gerðin sæi um umsjón hennar samkvæmt vegalögum. Við eftirgrennslan hjá Vega­gerðinni reyndist enginn þekkja til málningar­vinnunnar þar á bæ.

Fram kom hjá fulltrúum stofnunarinnar að almennt séu fátíð leyfi gefin fyrir slíkri málun, og þá aðeins ef sérstöku íblöndunar­efni sé bætt í málninguna til þess að minnka hálku.

Eftir nánari skoðun Ingimundar með lögfræðingi og samskipta­stjóra Vega­gerðarinnar liggur hins vegar fyrir skýring á málinu. Samkvæmt þeim er allur rekstur, viðhald og umsjón göngubrúa í höndum sveitar­félaganna sjálfra. Mosfellsbær þurfti því ekki leyfi frá Vega­gerðinni til þess að mála yfirborð stígsins.

„Varúð, búið ku vera að heilmála yfirborð göngu- og hjóla­brúar í Mosfellsbæ. Skv. lýsingum ku Vinnu­skóli Mosó hafa gert það.

Tel þetta geta aukið sleipu og varði umferðar­öryggi. Ég taldi Vega­gerðin sennilega hafa umsjón með brúnni m.v. vegalög starfs­maður Mosfellbæjar í gegnum skipti­borð staðfesti umsjón Vega­gerðarinnar

Ég ræddi við Pontíus og Pílatus hjá Vega­gerðinni um málið og átti gott spjall um hættu af málningu fyrir umferð, fátíð leyfi, og aðeins íblöndunar­efni til að minnka sleipu. Enginn hjá Vega­gerðinni þekkti til málningar­vinnunnar.

Í tilraunum til að rekja ákvarðana­ferlið í Mosó var mér tjáð að bæði Vega­gerðin og Mosó hefðu gefið leyfi, en að allir væru á stífum fundar­höldum vegna umhverfis­slyss, og reyndist minnkaútsleppingar, og gætu ekki rætt málið frekar þá stundina.

Eftir samtal við lögfræðing Vega­gerðin og samskipta­stjóra hennar G. Pétur segja þau að allur rekstur og umsjón göngubrúa séu í höndum sveitar­félaga sem ekki þurfi leyfi til að mála yfirborð göngu­stíga.

Ég er ekki sann­færður þar um, á eftir að skoða betur laga­ábyrgð.

Óháð ástæðum fyrir heilmálun þá þarf hjólreiða­fólk að hafa varann á þegar þarna er farið um. Frekari fyrir­spurn til Vinnu­skólans og Mosó hefur verið send, þekki ekki hvort málningunni er ætlað að vera þarna til framtíðar eða verði þvegin burt í lok ágúst mánaðar.“

Fleiri hafa lýst yfir miklum áhyggjum með þessa vinnu, þar á meðal Ingi Örn Kristjánsson

„Þó þetta sé voða fínt þá verð ég að velta fyrir mér hvort þetta verði ekki fljúgandi hált í bleytu?

Mikið af börnum og full­orðnum sem hjóla þarna yfir og það langar engum að detta í grind­verkið á þessari brú.“

Varúðarorð til vegfarenda

Enn á eftir að skera úr um hvort málningunni sé ætlað að vera á brúnni til frambúðar eða hvort hún verði þvegin burt í lok ágúst­mánaðar. Formleg fyrir­spurn þess efnis hefur verið send til Mosfells­bæjar og Vinnu­skólans.

Á meðan óvissa ríkir um ábyrgð og hálku­varnir eru hjólreiða­fólk og aðrir vegfarendur hvattir til að sýna ýtrustu varkárni og hafa varann á þegar farið er yfir brúna í bleytu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum