Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Jón Steinar: „Hræsni að lög­menn og dómarar séu að refsa fólki fyrir fíkni­efna­notkun“

Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, telur KSÍ ganga of langt.
Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, telur KSÍ ganga of langt.

Lög­maðurinn og fyrr­verandi hæstar­réttar­dómarinn, Jón Steinar Gunn­laugs­son, er nýjasti viðmælandinn í pod­casti Sölva Tryggva­sonar.

Jón Steinar er einfald­lega maður með sterkar skoðanir.

Varðandi áfengi segir hann segir það vera hræsni og tvískinnung að leyfa á­fengi en banna önnur efni.

„Ég er með þá til­gátu að þeir sem eru mjög mikið fyrir á­fengi séu jafn­vel harðari en aðrir á móti ó­lög­legum fíkni­efnum, af því að þá geta þeir selt sér að á­fengi sé nú betra og fínna efni. Það er ekkert annað en hræsni að ég og aðrir lög­menn og dómarar séu að refsa fólki fyrir fíkni­efna­notkun eða brot tengd fíkni­efnum, en svo förum við saman á barinn að drekka eftir að við erum búnir í vinnunni.“

Jón Steinar talar af reynslu – hann þekkir á­fengisvandamál á eigin skinni; þurfti á endanum að fara í með­ferð. Hann hefur lengi talað fyrir lögleiðingu fíkniefna og segist aldrei hafa verið sannfærðari heldur en nú:

„Við eigum að fræða börnin okkar og unglingana og gera allt sem hægt er til að draga úr eftir­spurninni. Svo eigum við að setja enn meira púður í að hjálpa þeim sem verða fíklar, en boð og bönn virka ekki. Sagan undan­farna áratugi sýnir okkur það einfald­lega.

Eins og þetta er núna eru börn og unglingar sem ánetjast þessum efnum nauðbeygð til að verða sér úti um pening af því að þetta er ólöglegt og neðanjarðar. Þá byrja þau að fremja glæpi og selja sig og það eru svo glæpamenn sem maka krókinn. Það myndi breyta miklu að gera þetta allt löglegt og ríkið gæti svo notað hluta af peningnum sem myndi sparast við löggæslu til að hjálpa þeim sem verða fíklar,” segir Jón Steinar, sem segir það hámark hræsninnar að fína fólkið sem drekki áfengi vilji hörð viðurlög við notkun annarra efna:

„Ég er með þá tilgátu að þeir sem eru mjög mikið fyrir áfengi séu jafnvel harðari en aðrir á móti ólöglegum fíkni­efnum, af því að þá geta þeir selt sér að áfengi sé nú betra og fínna efni. Það er ekkert annað en hræsni að ég og aðrir lögmenn og dómarar séu að refsa fólki fyrir fíkni­efnanotkun eða brot tengd fíkni­efnum, en svo förum við saman á barinn að drekka eftir að við erum búnir í vinnunni.”

Jón Steinar þekkir vandamál áfengis af eigin raun og hann þurfti á endanum að fara í meðferð.

„Ég fór í meðferð fyrir 43 árum síðan. Ég var helgar­drykkju­maður og drakk nokkra daga í röð, en svo dreif ég mig í meðferð þegar þetta var orðið augljóst vandamál. Ég er mjög vel kvæntur og það var konan mín sem sá til þess að ég gerði loksins eitthvað í málunum. Ég var í viku í meðferðinni og sá þá hvar ég var staddur og hef ekki bragðað maltöl síðan.

Ég fékk loksins almennilega fræðslu um áfengi og fíkn í meðferðinni og eftir það gat ég ekki flúið þær upplýsingar sem ég fékk. Ég er þannig úr garði gerður að ég á erfitt með að ljúga að sjálfum mér og ég hef verið laus við áfengi síðan. Líf mitt batnaði stórkost­lega eftir að ég hætti að drekka, bæði mitt og fjöl­skyldu minnar.”

Þáttinn með Jóni Steinari og alla aðra þætti Sölva Tryggva­sonar má nálgast á heima­síðunni: solvitryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“