Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Tómas hjartalæknir komst á toppinn: „Í gær létust tveir á fjallinu“

Tómas Guðbjartsson er mikill fjallagarpur.
Tómas Guð­bjarts­son er mik­ill fjalla­garpur. Mynd: Facebook.

„Fyrir lækni með áhuga á hæðar­veiki var þetta eins og tilrauna­stofa á áhrifum þunns lofts á manns­líkamann- því miður,“ skrifar Tómas Guðbjartsson, hjarta­læknir og göngu­garpur, sem náði sjö kílómetra háum tindi fjallsins Aconcagua í Argentínu á föstudag. Hann greinir frá þessu á Facebook síðu sinni. Gangan var ekki auðveld, vegna mikillar snjókomu voru aðstæður óvenju erfiðar. Með Tómasi í för voru níu amerískir fjall­göngumenn, í fara­broddi voru þeir Ed Viesturs og Garret Madison sem báðir hafa toppað fjallið Everest tólf sinnum. Tveir úr hópnum þurftu að verða eftir í þriðju búðum, annar þeirra fékk niðurgang og hinn háfjalla­lungna­bjúg en Tómas greindi hann sjálfur. Læknirinn glímdi sjálfur við heiftuga maga­kveisu í grunn­búðum fjallsins en var að öðru leiti heilll heilsu alla gönguna. Úr gönguhópi sem var degi á eftir hópi Tómasar, létust tveir menn. Færslu Tómasar má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.

„Í fyrradag rættist gamall draumur þegar ég náði 7 km háum tindi Aconcagua í Argentínu, hæsta fjalli utan Himalajafjalla. Mér bauðst að slást í för 9 ameríkra fjall­göngumanna sem Íslands­vinurinn Ed Viesturs leiddi ásamt Garret Madison. Báðir hafa náð tindi Everest 12 sinnum, ásamt K2 og öllum helstu fjöllum heims, Ed iðulega án viðbótar­súrefnis. Þetta var heljarinnar puð, enda aðstæður óvenju erfiðar vegna mikilla snjóa. Því var gengið úr búðum 1 í búðir 2 & 3 á mann­broddum með ísöxi og svo áfram upp á snævi þaktan tindinn – og notast við línu í bröttustu brekkunum. Mestur tími fór í hæðar­aðlögun og bera byrgðir upp og niður fjallið. Veður var kalt en frábært útsýni og illvígir svipti­vindar, sem þekktir eru á Aconcagua, létu okkur að mestu í friði. Fyrir utan Ed og Garret þá var með okkur reynslu­boltinn Cutsio, heima­maður sem var í sinni 54. ferð á tindinn) og við síðan 8 í hópnum, allt þaulvant fjalla­fólk sem í mörgum tilvikum er reyna sig við Seven Summits og ætlar sér á Everest á næstu misserum. Tveir helltust úr lestinni í búðum 3, sem heita Camp Cholera, og það með réttu. Annar þeirra fékk einmitt heiftugan niðurgang þar, og hinn háfjalla­lungna­bjúg sem ég gat greint á staðnumn – því við deildum tjaldi! Af hinum 6 þurftu þrír steraskot í vöðva á leiðinni niður – vegna háfjalla­veiki (AMS), og þá til að geta klárað 13 klst. toppa­daginn. Sjálfur var ég í miklu stuði, enda búinn að taka út heiftar­lega maga­kveisu í grunn­búðum. Ekki spillti fyrir að sl. vikur hef getað æft mig heima í fimbulkulda og brodda kann ég vel við eftir áratuga reynslu af íslenskum jöklum. Tölfræðin er erfið á Aconcagua og tæplega 30% ná tindinum. Nú er ég kominn heilu og höldnu niður til vínborgarinnar Mendoza í 37 stiga hita, degi á undan áætlun vegna veður­glugga sem okkur bauðst- sæll og glaður – en um leið hugsi yfir þeim hættum sem svona há fjöll bjóða upp á. Í gær létust 2 á fjallinu, en þeir voru úr hópi sem var degi á eftir okkur, og öðrum tveimur varð fóta­skortur neðan hátindsins í sl. viku og er vart hugað líf á gjörgæslu. Aconcagua er því heljarinnar áskorun og maður lærir að þekkja sjálfan sig, undirbúa sig vel og taka réttar ákvarðanir við erfiðustu aðstæður. Fyrir lækni með áhuga á hæðar­veiki var þetta síðan eins og tilrauna­stofa á áhrifum þunns lofts á manns­líkamann- því miður. Samt er gefandi að geta sem læknir komið svo mörgum til hjálpar á fjallinu.. Á næstu dögum mun ég birta fleiri myndir af leiðangrinum, en það er fyrst núna sem ég er kominn í samband við alheiminn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim