Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Landið er lamað vegna veðurs – „Vinsamlegast ekki leggja af stað“

Flestar leiðir á Reykja­nesskaga eru lokaðar vegna óveðurs sem nú gengur yfir landið. Gular og appelsínu­gular veður­viðvaranir eru í gildi víða um landið.

Reykja­nesbraut hefur verið lokað frá Hafnar­firði alla leið að flug­stöðinni og fjöldi fólks situr fast á Kefla­víkur­flugvelli. Öllu Ameríku­flugi var aflýst í nótt en annað flug er á áætlun, í það minnsta enn sem komið er þótt ófært sé milli höfuð­borgarinnar og flug­vallarins.

Fylgd­arakst­ur er að hefjast frá Hafnar­f­irði til Kefla­vík­ur og eins frá Kefla­vík til Hafn­ar­fjarðar. Þetta kem­ur fram á vef Vega­gerðar­inn­ar en Reykja­nes­braut er lokuð vegna veðurs. Löng bílaröð hef­ur mynd­ast við ál­verið í Straums­vík.

Grinda­víkurvegur er lokaður eins og flestar leiðir á Reykja­nesskaga. Krýsuvíkur­vegur er lokaður, Nesvegur eru ófær og lokað er um Mosfells­heiði. Þá hefur Hellis­heiði verið lokað og eins vegurinn milli Selfoss og Hvera­gerðis eftir því sem fram kemur á vef Vega­gerðarinnar. Varað er við hálku í Þrengslunum en leiðin er opin. 

Norðaustan hvassviðri gengur yfir landið sunnan­vert. Að suðaustur­landinu tók gildi appelsínugul viðvörun.

Lögreglan á Suðurnesjum varar fólk einfald­lega við ferða­lögum:„Færðin á svæðinu er alls ekki góð og hafa einstaklingar á illa búnum bifreiðum fest sig á flestum stofn­brautum svæðisins. þetta er sama sagan sem er sögð ítrekað – þessar bifreiðar valda í kjölfarið miklum vandræðum. Vinsamlegast ekki leggja af stað á illa búnum bifreiðum. Jafnvel snjó­ruðnings­tæki eru að lenda í vandræðum!,“ segir í tilkyningu lögreglunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis