Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Yfirlýsing frá Breiðablik: „Gísli man ekkert eftir atvikum á vellinum eftir höfuðhöggið“

Eftir grein á vefsíðunni fotbolti.net sá knattspyrnu­deild Breiða­bliks sér ekki annað fært en að senda frá sér yfir­lýsingu.

Snýst málið um að leikmaður Breiða­bliks, Gísli Eyjólfsson, sýndi ljós­myndara vefsíðunnar fotbolti.net óvirðingu er hann gekk meiddur af velli; kom síðar í ljós að Gísli hlaut heila­hristing og var langt frá því að vera líkur sjálfum sér.

Hér má lesa yfir­lýsinguna frá Breiða­blik í heild sinni:

Flosi Eiríks­son.

Á síðunni Fótbolti punktur net birtist fyrr í kvöld frétt þess efnis að Gísli Eyjólfsson, leikmaður Breiða­bliks hefði sýnt Jónínu Guðbjörgu Guðbjarts­dóttur, ljós­myndara miðilsins, dónaskap.

Vegna þessa er nauðsynlegt að fara yfir málavexti.

Í leik milli Leiknis og Breiða­bliks fékk Gísli þungt höfuðhögg. Þegar sjúkra­þjálfarinn kom að honum inn á velli, var hann ekki með sjálfum sér, talaði hálf­samhengis­laust og var óstöðugur á fæti. Á leið út af velli sýndi Gísli ljós­myndaranum óviðeigandi framkomu og biður knattspyrnu­deild Breiða­bliks Jónínu afsökunar á þeirri hegðun.

Gísli man ekkert eftir atvikum á vellinum eftir höfuð­höggið, hvorki orða­skiptum eða öðru.

Þegar hann var kominn upp á sjúkrahús og var sagt frá atvikum, hringdi hann í ljós­myndarann og bað hana afsökunar á sinni framkomu. Hún tók við því og samþykkti afsökunar­beiðnina.

Knattspyrnu­deild Breiða­bliks fordæmir skrif frétta­ritara Fotbolta punktur net, sem ekki var á leiknum, af atvikinu og af hversu mikilli léttúð er fjallað um alvarlegt höfuðhögg okkar leikmanns og þess að hann var sendur beint upp á spítala.

Fulltrúar Breiða­bliks reyndu að útskýra málsatvik fyrir frétta­ritara eftir að skrifin birtust með afar litlum árangri.

Við fögnum frétta­flutningi af fótbolta og kveinkum okkur ekki yfir gagnrýni, en svona skrif er ekki hægt að láta liggja.

Gísli Eyjólfsson á það ekki skilið né nokkur annar leikmaður sem lendir í svipuðum atvikum eða meiðslum.

Að lokum ítrekum við afsökunar­beiðni okkar í knattspyrnu­deild Breiða­bliks til Jónínu.

Flosi Eiríksson, formaður knattspyrnudeilar Breiða­bliks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim