Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sósíalisti reiður vegna orða Einars Þorsteinssonar: „Hið kapítalíska niðurrif heldur bara áfram“

Einar Þorsteinsson borgarstjóri.
Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóri.

Sósíal­istar sem og ýmsir aðrir, eru afar ósáttir við orð Einars Þorsteins­sonar, formann borgar­ráðs og tilvon­andi borgar­stjóra um starfsemi Vinjar.

Sara nokkur skrifar færslu í hóp Sósíal­ista á Facebook en hún hlekkjar frétt Frétta­blaðsins um gagnrýni á orð Einars. Færsla Söru er harðorð enda kallar hún hana „rant“ eða reiði­lestur. Orð Einars féllu í viðtali við Hringbraut en þar sagði hann: „Ég velti því upp, þetta byrjaði sem sjálfboða­liða­verkefni af hálfu Rauða krossins, starfsemin í húsinu er þess eðlis að það þarf ekki endilega fagfólk til þess að sinna því. Ég velti fyrir mér hvort einhverjir af þessum 4.000 sem skrifuðu undir þetta eða Rauði krossinn eða aðrir sem vilja sinna þessum hópi með þessum hætti vilji gera það áfram.“

„Rant. Meirihlutinn í borginni er ekki að gera gott mót þessa dagana og hið kapítalíska niðurrif heldur bara áfram. Einn innviður í einu. Nei, afsakið – allir í einu, smá á hverjum degi,“ svona byrjar póstur Söru.

Og hún heldur áfram:

„Engar áætlanir er uppi um að auka við tekju­stofna t.d. með því að skora á stjórn­völd að taka skatt af fjármagns­tekjum eins og gert er af launa­tekjum almennings svo hægt sé að standa undir kostnaði við reksturinn. Reiknað var út að borgin yrði af 9 milljörðum 2021 og sveitar­félög landsins samanlagt um 17 milljörðum. Af því að það má ekki snerta á fjármagns­eigendum (við erum ekki að tala um þau sem erfa íbúð eftir foreldra sína).

Og ekki vildu þau frysta launin sín í eitt ár. Nei, það var ótækt. „Lausnin“ er að halda áfram að sverfa að viðkvæmustu hópunum því þau eru hvort er bara einskonar útgjöld sem má kannski bara sleppa? Hver þarf í raun „faglega þjónustu“ sem krefst menntunar og leiðir af sér gæði fyrir fólkið?“

Því næst vitnar Sara í orð Einars:

„Þessi ummæli endur­spegla algjört metnaðar- og virðingar­leysi Fram­sóknar gagnvart fólki: „„Ég velti því upp, þetta byrjaði sem sjálfboða­liða­verkefni af hálfu Rauða krossins, starfsemin í húsinu er þess eðlis að það þarf ekki endilega fagfólk til þess að sinna því.“Í samtali við Frétta­blaðið segir Margrét geðhjúkrunarfræðingur „að það hafi þurft að hjálpa starfs­mönnum sveitar­félaga að skilja að gestirnir stýri í raun starfinu. Í því ljósi sé varhuga­vert að halda að sjálfboða­liðar geti leitt starf hópsins í Vin á kostnað fagfólks.”

Spurning hvort það megi ekki líka bara leggja af menntun leik­skóla­kennara – eru þau ekki bara að hugga og snýta allan daginn? Þarf eitthvað endilega fagfólk til að sinna þessu. Eða á hjúkrunar­heimilinum – er þetta ekki meira og minna sama sýslið með vesalinga sem þarf ekkert endilega fagfólk til að sinna?“

Í lokaorðum sínum skýtur Sara bylmings­fast í borgar­stjórnina í heild:

„Skortur á fagfólki í borgar­stjórn endur­speglast kannski best í honum sjálfum og kannski eru þau sem „kusu bara Framsókn“ bara sátt við niður­skurðinn og óstjórnina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Halla Tómasdóttir segir að margir karlar glími við einmanaleika og óvissu um hlutverk sitt í samfélaginu.

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja