Ein besta skytta Íslandssögunnar í handbolta, FH-ingurinn Héðinn Gilsson, segir í hóp á samfélagsmiðli að verið sé að níðast á aldraðri móður sinni og að nú sé honum nóg boðið:
„Ég get ekki orða bundist, á fimmtudaginn fyrir sléttri viku skipti ég um brotna rúðu hjá mömmu og nú var verið að brjóta hana aftur, 6. rúðan sem er brotin og þriðja rúðan síðan í nóvember,“ segir Héðinn og spyr:
„Hvaða aumingjar og drullusokkar eru það sem þurfa að níðast á konu á áttræðisaldri?“
Héðinn lætur ekki bjóða sér hvað sem er, og hefur aldrei gert, og hann hefur nú tilkynnt málið til lögreglu:
„Ef þeir eða foreldrar þeirra lesa þetta, mega þau vita að það er búið að hafa samband við lögreglu.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir