Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Karl Ágúst birti áratugagamalt ljóð sem smellpassar við nútímann

„Vekur mig satt að segja til umhugsunar“

Karl Ágúst Úlfsson
Karl Ágúst Úlfsson Halda mætti að ljóðið hafi verið samið í gær Mynd: Þjóðleikhúsið

Karl Ágúst Úlfsson birti í hádeginu rúmlega 40 ára gamalt frumsamið ljóð á Facebook, sem passar skugga­lega við nútímann.

Hinn ástkæri leikari og lista­maður, Karl Ágúst Úlfsson birti í hádeginu ljóð sem hann samdi árið 1983 og segir inni­haldið vekja hann til umhugsunar, þar sem það passar enn vel við heiminn eins og hann er í dag. Hér fyrir neðan má lesa færslu Karls Ágústar og ljóðið í heild sinni.

„Þetta ljóð er orðið vel ríflega fertugt. Samt er eins og ég hafi ort það í gær, en ekki 1983. Það hefur birst einu sinni á Facebook og hvergi annars staðar. Vekur mig satt að segja til umhugsunar.“

ÁN TITILS

Þið segið að ég sé heigull
en horfiði bara á:
Ég horfist blákalt í augu
við bráðan bana
fólks um allan heim.

Ég kveiki á sjónvarpi með öruggu handtaki
og horfi óhagganlegur á svívirtar konur
brennandi þorp
og deyjandi börn.

Ég hlusta á útvarp
og skipti ekki svip
þótt ég heyri af ógnum úr austri og vestri.
Og er ég þá heigull?

Ég fletti blöðum
og bregður ekki hót
þótt ég lesi um yfir­vofandi ógnir
í öllum heimsins hornum,
því ógnin er öllum þekkt
og einnig mér.

En ég, kæru vinir, er enginn heigull.
Ó, nei.
Ég er nútíma­hetjan -
nútíma-fornaldar­hetjan
sem bregður hvorki við sár né bana
annarra.

Glaður og reifur
ber ég höfuðið hátt
er aðrir síns bana bíða.

Og svo skal ég velja mér góða
vídeómynd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Mette Frederiksen segir gagnrýni á orðaval sitt ekki lýsa afstöðu sinni. Ummæli hennar í stjórnmálahlaðvarpi hafa vakið umræðu í Danmörku.
Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Stefnir í rólegt stuð

Dóttir.x tilnefnd til Music Moves Europe-verð­launanna 2027